Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Blaðsíða 7
Síðan »Lögfræðingur« Páls amtmanns Briem
hætti að koma út um áramótin 1901 — 1902, hafa ís-
lendingar eigi átt neitt rit, er sérstaklega hafi fjallað
um lögfræði og hagfræði. Og koma þó fáar fræði-
greinir frekar við hag almennings en þær. Læknar
komu sér upp timariti 1915 og prestar 1919.
Engri þjóð er jafnáríðandi og íslendingum, að
eiga vekjara í sem flestum greinum. Veldur því meðal
annars fjarlægð landsins frá menningarlöndunum og
fámenni og frumbýlingsháttur þjóðarinnar á flestum
sviðum.
Til þess að varna því, að þessar fylgjur vorar
valdi þeim uppdrætti, sem vanalega fytgir einangrun,
hafa flestir lagamenn og hagfræðingar í Reykjavík
stofnað félag til þess aðallega að gefa út tímarit, er
ræði lögfræðileg og hagfræðileg efni.
Er til þess ætlast, að tímaritið komi út einu sinni
á hverjum ársfjórðungi, 2‘/g örk í hvert skipti og
kosti 20 kr. á ári.
Tímaritinu er aðaUega ætlað að flytja frum-
samdar fræðigreinir, ritdóma og fagnýjungar frá út-
löndum. En það mun líka taka þátt í umræðum um
mikilsvarðandi löggjafarefni og lagaframkvæmdir, ept-
ir því sem atvik renna til.
Félagið hefir fengið 1000 kr. styrk úr Sáttmála-
sjóði og kann Háskólaráðinu bestu þakkir fyrir hjálp-
1