Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Side 15
Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. 9
en aftur á móti máske mikla hagsmunavon í ágóðahlut eða
öðru slíku, ef vel gengur. petta gjörir þá djarfari og óvar-
kárari í ráðstöfunum þeim, er þeir gjöra fyrir félagið.
þ>eir leggja fremur á tæpasta vaðið. Oft mun það einn-
ig vera svo, að menn leyfa sér meira, hætta sér nær tak-
markalínunni fyrir því, hvað sæmilegt er í viðskiftum,
þegar persónulega ábyrgðin vofir ekki yfir þeim. Tak-
markaða ábyrgðin er líka freisting fyrir menn til þess
að reyna, að velta sínum eigin vandræðum yfir á aðra.
þess munu mörg dæmi, að gjaldþrota fyrirtæki, sem
engrar viðreisnar von hafa átt, hafa verið gjörð að hluta-
félögum. Tapið hefir þá komið niður á röngum stað.
Hlutafélög hljóta og að verða með því skipulagi, að vald-
jnu í félagsmálum sé skift milli fleiri aðila. En um leið
dreifist þá líka ábyrgðin og tryggingin fyrir því, að
störfin séu vel af hendi leyst, verður minni. Margar
fleiri hættur mætti nefna, sem hlutafélögunum fylgja.
þær vofa bæði yfir hluthöfunum og yfir skuldheimtu-
mönnum félagsins. Og menn hafa séð það fyrir löngu,
að löggjöfin getur ekki látið þær afskiftalausar. þess-
vegna hafa menn víðast hvar sett lagaákvæði, er hafa
að geyma ýmsar præceptivar reglur um stofnun og starf
hlutafélaga. pessi hlutafélagalög hafa verið bygð á nokk-
uð mismunandi grundvelli á ýmsum tímum og hjá ýms-
um þjóðum, þ. e. menn hafa farið mismunandi leiðir til
að ná þessu marki. Framan af reyndu menn að koma
í veg fyrir misbrúkun hlutafélaganna með því að krefjast
opinbers leyfis eða löggildingar til stofnunar slíkra félaga.
J>etta þótti ekki gefast vel, og tóku menn þá í þess stað
að setja ítarleg præceptiv ákvæði um stofnun og skipu-
lag hlutafélaga. En það reyndist eigi heppilegt heldur, og
hlutafélög nútímans byggja því á öðrum grundvelli. Nú
reyna menn aðallega að koma í veg fyrir misferlið með
því að krefjast þess, að ýms þýðingarmikil atriði um
stofnun og hag félagsins séu birt almenningi, og þá jafn-
framt með því að leggja stranga ábyrgð á stofnendur og
stjórnendur félagsins, ef þeir vanrækja tilkynningar eða