Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Page 25
Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. 19
félagsskránum að byggja. Mundi þá reynast nauðsynlegt
að hafa eftirlit með hlutafélagaskránum, og mætti haga
því þannig, að haldin væri aðalhlutafélagaskrá fyrir land
alt, t. d. í stjórnarráðinu, sem auðvitað gæti vísað frá
ólöglegum tilkynningum, þó að þær væru teknar til greina
heima í héraði.
í IV. kafla laganna eru ákvæði nokkuð ýmislegs efnis,
svo sem um skyldu áskrifenda til að greiða lofað hluta-
fé, um útgáfu bráðabirgðaskírteinis fyrir greiðslu hluta-
fjár, um útgáfu hlutabréfs, um hækkun hlutafjár eða
minkun, um rétt hlutafélaga til þess að eiga eða taka að
veði hlutabréf sjálfs sín eða bráðabirgðaskírteini, og
um ógildingu eða skifti á bráðabirgðaskírteini eða hluta-
bréfi. Eg ætla aðeins að drepa stuttlega á fáein af þess-
um ákvæðum.
1 22. gr. segir, að hlutabréf megi ekki gefa út fyr
en félagið sé skrásett og hlutur greiddur að fullu. þetta
síðarnefnda skilyrði, að hluturinn sé greiddur að fullu
áður en hlutabréfið er gefið út, mun vera fremur óvíða
sett. Eg man eigi til, að eg hafi séð það nema í sænsku
hlutafélagalögunum, § 27. Annarsstaðar er þess aðeins
krafist, að viss prócenttala sé greidd af bréfinu, en þá
jafnframt ákvæði um það, að sett skuli trygging fyrir
afganginum áður en hlutabréfið er gefið út. þetta ákvæði
hlutafélagalaganna okkar gæti fljótt á litið virst vera
heppilegt. Hlutabréfið er skírteini fyrir því, að hluthaf-
inn njóti fullra félagaréttinda, og það gæti virst mjög
sjálfsögð regla, að hann fengi eigi slíkt skírteini fyr en
hann hefði efnt skyldu sína við félagið að fullu. En í
framkvæmdinni mun þetta ákvæði samt ekki reynast
heppilegt. I sumum félögum hagar svo til, að félagið
harf á tiltölulega litlu rekstursfé að halda, en hinsvegar
harf það að hafa töluvert fjármagn í bakhöndinni, er
hægt sé að grípa til í snatri, ef einhver óvenjuleg atvik
homa fyrir, sem gera slíkt nauðsynlegt. þau félög geta
>ví starfað, ef til vill mjög lengi og með mjög góðum
arangri, þó að aðeins lítill hluti hlutafjárins sé greidd-
2*