Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga - 01.10.1922, Side 33
Tímarit lögfræðinga og hagfræðinga. 27
in talin sjálfstæð fyr en upp úr ófriðnum. Lagamenn af
beggja hálfu sóttu fyrsta sinni Stockhólmsfundinn 1919,
og þó hvorir með sínu móti. Finnar höfðu þá stofnað
deild hjá sér, og tóku þátt í fundinum á sama hátt sem
hinar 3 Norðurlandaþjóðirnar. En íslenskir lagamenn
höfðu enga deild stofnað, enda barst fundarboðið hingað
svo seint, að tími var eigi til deildarstofnunar. þó þótti
lagamönnum þeim, sem náðst hafði til, einsýnt að taka
bæri boðinu, svo gagngerð breyting sem þá var ný orð-
in á allri afstöðu landsins út á við, enda sóttu 2 íslend-
ingar fundinn, við Eggert Briem, þáv. yfirdómari.
1920 var stofnuð sérstök íslensk deild innan Norræna
sambandsins. Gengu þá þegar í hana allir lagamenn í
Reykjavík, og síðan hafa nokkrir bæst við utanbæjar,
enda eru félagar nú 40. Væri óskandi, að lagamenn utan
Reykjavíkur sýndu deildinni sömu góðvild og innanbæjar-
lagamenn, og gengju í hana. þeir, sem það vilja gei’a,
þurfa eigi annað en snúa sér til deildarstjórnarinnar og
senda jafnframt deildargjaldið, sem er 15 kr. fyrir hvert
þriggja ára tímabil, talið frá og með síðasta fundarári.
Fyrir gjald þetta fá þeir fundargerðirnar ókeypis, en fyr-
ir 1919 urðu þær allstór bók, eða 402 bls. í stóru 8
blaða broti.
Samkv. kosningu deildarfundar 18. janúar þ. á. skipa
stjórnina kjörtímabilið 1922—25 þeir: Lárus H. Bjarna-
son og Eggert Briem hæstaréttardómarar, og Einar Arn-
órsson prófessor.
12. f u n d u r Sambandsins var haldinn í Kristíaníu
síðastliðið sumar, dagana 22.—24. ágúst. Um 440 laga-
menn höfðu boðað komu sína, þar á meðal 2 íslendingar.
En nokkru færri munu sennilega hafa sótt fundinn. Af
hendi íslendinga bættist þó Magnús Magnússon cand.
,]ur. við þá Svein sendiherra Björnsson og Lárus H.
B j arnason.
Hingað til hafði aðalframsögumaður, eða sá, er