Dýraverndarinn - 01.05.1979, Síða 23
tvö ár, einnig að athugaS yrði með
ýmsa aðra fugla sem virðist fara
mjög fækkandi hér á landi. Lítið
virðist þó ske hjá stjórnvöldum
varðandi þessi mál, og sjálfsagt
verður enn löng bið á því, að þeir
sem, þar ráða, hafa tíma til að
sinna málefnum, sem snerta „mál-
leysingjana", sem því miður eiga
ekki nógu marga málsvara, þó sem
betur fer virðist fjölga talsvert
núna á allra síðustu árum, sem
að mestu er að þakka Dýravernd-
unarsamtökunum — því ég tel að
SDÍ vinni nú ötullega að því, að
stækka þennan hóp, og vonandi
er að margir dugandi liðsmenn
bætist enn við, en ég tel að stjórn
SDÍ vinni mjög ötullega að því
að vekja fólk til umhugsunar um
öll þau málefni sem snerta blessuð
dýrin og fuglana. Væri það ekki
hryllilegt ef núna síðasta aldar-
fjórðunginn af tuttugustu öldinni,
yrði þannig ástatt að margir af
þeim fuglum og dýrum yrði úrýmt
eða svo til, kannske hugsanlegt að
fá að sjá þau í „fangelsum" það
er búrum, eða einskonar svínastí-
um eins og t.d. í Sædýrasafninu,
þar sem dýrin láta lífið fyrr eða
s<ðar, sbr. hvalirnir sem þar dráp-
ust á s.I. vetri, o. fl. o. fl.
Þá sendum við skeyti til við-
skiptaráðuneytisins, þar sem skor-
að var á það, að gefa ekki leyfi fyr-
lr útflutningi á lifandi sauðfé
ril slátrunar í austurlönd-
u*n. En mjög sterkur orðrómur
Var um það í ýmsum fjölmiðlum,
að það stæði til. Svar kom sam-
^ægurs frá viðskiptaráðuneytinu
um að ekki hefði verið beðið um
neitr úftlutningsleyfi fyrir þessu.
Síðar las ég það svo í einhverju
klaði, að ekkert yrði úr því, að
selja lifandi sauðfé til útlanda, og
Var þar að finna þann tón, að spillt
dýraverndarinn
hefði verið fyrir því að úr þessu
yrði, m.a. af dýraverndunarsamtök-
unum, og hefðu bændur misst
þar af góðum, markaði fyrir afurð-
ir sínar, en sjálfsagt hefur þar ein-
hver „mammon" hugsandi maður
verið að verki.
Nú eins og áður hefur lítið ver-
ið um fundahöld hjá okkur, að-
eins haldinn aðalfundur, sem að
sjálfsögðu var fámennur, enda
virðist það nú tíska hjá fólki, að
mæta ekki á fundum. Stjórnar-
fundir voru fjórir, langir og góðir,
og auk þess höfðum við óformleg
samtöl í síma eða persónulega mik-
ið oftar og ævinlega ef um eitt-
hvað mál var að ræða sem þurfti
að sinna.
Þá sáum við um sölu merkja á
„Degi dýranna" eins og undanfarin
ár. og gekk salan mjög sæmilega
og meira seldist núna en áður
hafði selst, eða alls 983 merki, og
brúttósalan kr. 98.300, - og var
nettósalan kr. 78.640, — auk smá-
vegis gjafa. En árið 1977 seldust
781 mjerki.
Lítið hefur fjölgað félögunum
hjá okkur, þó er aðeins hreyfing í
þá átt, þó þyrfti að vera mun meiri,
en nú eru skrásettir 64 félagsmenn.
Þá vil ég geta þess, að stjórnin
og fleiri í félagi okkar sem mér er
kunnugt um, eru mjög ánægðir
með störf stjórnar SDÍ og verk
hennar. Það er mjög ánægjulegt að
komið var upp þessum „Flóamark-
aði" og þeim tekjum sem þar skap-
ast til eflingar þessum ágætu og
nauðsynlegu félagssamtökum. Einn-
ig að hægt var að ráða starfsmunn,
svo létt væri að einhverju leyti
þeim miklu störfum sem á stjórn
SDÍ hvílir alltaf. Þá vil ég lýsa
ánægju minni yfir því sem stjórn-
in eða hluti hennar hefur gert í
sambandi við Sædýrasafnið, og
væri óskandi kleyft reyndist að
stöðva þá vafasömu meðferð sem
dýrin hafa þar við að búa. Hér
mæli ég ábyggilega fyrir munn
mjargra.
Það er ánægjulegt að Dýraspít-
alinn skuli geta starfað, þó það sé
ekki eins og ætlað er, vegna lækn-
isleysis. En hvenær ætli sá ágæti
maður sem nú fer með yfirdýra-
læknisembættið, sjá að sér og leyfi
að fenginn sé erlendur læknir á
meðan enginn íslenskur dýralæknir
fæst til að taka þetta starf að sér.
Eg hygg, að ég hafi þessa skýrslu
ekki lengri, en að lokum vil ég
fullyrða það, að þó starfið hjá okk
-ur sé ekki umfangsmikið, þá er
ég viss um, að það gerir gagn að
fólk veit að hér er starfandi dýra-
verndunarfélag, sem, ávallt er
reiðubúið að veita aðstoð við mál-
efni dýranna, sé þess nokkur kost-
ur.
Að endingu vil ég svo færa
SDÍ og þá einkuin, og sér í lagi for-
manninum og gjaldkeranum ein-
lægar þakkir fyrir mjög ánægju-
legt og mikið samstarf á þessu
ári sem öðrum fyrri, og vona ég að
dýraverndunarsamtökin megi sem
allra lengst njóta þeirra góðu starfs-
kraftar sem nú fylla hvert sæti
SDÍ -stjórnarinnar.
Með félagskveðju,
Martus Helgason, form.
Leiðrétting
/ síðasta blaði var sagt frá gjöf
til blaðsins frá konu á Kristnes-
hceli. Rangt var farið með upphceð
gjafarinnar. Þessi gjöf var kr.
12.000 og biðst blaðið afsökunar á
pessum mistökum.
23