Dýraverndarinn - 01.05.1979, Page 27
vildi gjarnan sjá, hvernig ég liti
út, og kvað ég þetta meira en vel-
komið. Húsfreyjan skaust inn, og
út kom miðaldra kona, sem var
eitt hýrubros og þakkaði sínum
sæla fyrir, að sér skyldi veitast sú
gleði að sjá blessaðan manninn,
sem skrifaði eins fallega um dýrin
og hann gerði - já, og væri ekki
hræddur við að taka ærlega í lurg-
inn á sjálfum ráðherrunum! Þeg-
ar hér kom, hvessti þessi annars
glaðlega kona röddina og varð all-
hvasseyg, var jafnvel ekki laust
við, að kvik væri á höndunum á
henni, eins og hún í rauninni vildi
sagt hafa við háttsetta misgerða-
menn á þessum vettvangi: Þú
nýtur þess, að ég næ ekki til
þín! ... En hún breytti brátt aftur
um svip og raddhreim og sagði:
„Þú ættir að sjá börnin hérna,
þegar þau eru að lesa um hundinn
þinn — eða um hænsnin, maður!"
Já, mér var sannarlega hlýtt
fyrir brjósti, þegar ég ók úr garði,
og ég held, að syni mínum, sem
var eins og oftar ökumaður minn,
hafi orðið þetta atvik eftirminni-
legt ...
Ekki þurfti ég heldur að kvarta
undan stjórn samtakanna, hún
!ét í ljós, að henni þætti rétt sefnt.
• ■. Samtímis naut ég þeirrar sönnu
únægju mjög fljótlega, að verða
þess var, að skrif mín vöktu sára
gremju þeirra, er að var beint
skeytum í blaðinu."
Þannig skrifar Guðmundur
G. Hagalín, sú aldna kempa. Hann
a létt með, að skrifa svo um hvers-
dagslega hluti, að allir hafi gam-
an af. Slíkt er aðall góðra skálda.
Eg minnist þess, að á aðalfund-
Urn Samb. dýraverndunarfél. ísl.
'éttist oft brúnin á fundargestum,
Þegar Guðmundur Hagalín gekk í
sabnn. Það fylgdi honum eitt-
dÝRAVERNDARINN
Jórunn Ólafsdóttir úr Dýraverndunarfélagi Akureyrar er einlœgur stuðningsmað-
ur Dýraverndarans. A myndinni er hún
hjá þeim stendur hundurinn Snati.
hvert hressandi andrúmsloft og
ekki var á honum neitt hik, þegar
um afstöðu til ýmsra mála var að
ræða. — Jafnan tóku menn mikið
tilliti til þeirra skoðana sem hann
hafði á málunum.
og ritstjóri blaðsins Gauti Hannesson, o-g
Dýraverndarinn þakkar fyrr-
verandi ritstjóra sínum fyrir allt
gamalt og gott og blaðið árnar
hinu aldna skáldi alls hins besta
í framtíðinni.
Gauti Hannesson.
27