Heimir : söngmálablað - 01.02.1938, Síða 19

Heimir : söngmálablað - 01.02.1938, Síða 19
H E I M I R 15 hann síðan færði í letur „viðstöðulaust, eins hratt og hann mátti“. Þessvegna voru afköstin gífurleg. Hann samdi t. d. 18 ára gamall, árið 1815, dag einn i ágústmánuði 8 sönglög, og þremur dögum síðar aftur 8 sönglög, og sex dögum þar á ei'tir enn 6 sönglög og 1 kórlög. Messuna í g-dúr, sem er stórform kirkjulegrar tónlistar, samdi hann einnig 18 ára gamall á aðeins 5 dögum, og er hún eitt- Iivert yndislegasta verk i sínum stíl. Þannig eru dæmi þess, að hann samdi í einni svipan alveg undirbúnings- laust gullfalleg söuglög — i gluggaskoti í veizlusal, á hak- ið á matseðlunum á veitingahúsi í glöðum vinahóp. Vogl hélt, að hann semdi lögin i einskonar dáleiðslu (Clair- voyance), og gæli maður freistast til að trúa því, þegar maður gerir sér grein fyrir því, hve hvgging laganna er vönduð og lýtalaus i öllum smáatriðum, sem sannanlegt er að eru samin á svipstundu. Það styður og þessa skoð- un, að Schubert þekkti einu sinni ekki aftur lag, sem hann hafði sainið fyrir stuttu, þegar liann heyrði það sungið, og sagði: „Ekki ólaglegt. Eftir hvern er það?“ Eftir Scliuhert liggur yfir 600 sönglög og fjöldi annara tónsmiða, eins og' hljómdrápur (symphoníur), fiðluverk, píanótónsmiðar, messur, söngleikir, strokkvartettar o. fl. Það er ekki meiningin að segja hér æfisögu hans. llann fæddist árið 1797 i Vinarborg, ól þar aldur sinn að mestu óslitið og dó þar árið 1828 aðeins 31 árs að aldri. A leg- slein hans var letrað: Hér gróf dauðinn dýran sjóð, en þó enn dýrari vonir. Mozart dó 36 ára gamall og heið þá tónlistin mikio tjón. En ef hann hefði dáið jafnungur og Schubert, þa ætli heimurinn lieldur ekki söngleikiua „Don Juan“ og „Töfra- flautuna“ og lieldur ekki hljómdnápurnar hans þrjár írægu. Og hefði Beethoven dáið á sama aldri og Schuhert, jiá hefði heimurinn aldrei þekkt meginþorran af mcrki- legustu tónsmiðum hans. Grafskriftin á legsteini Schu- herts eru engar ýkjur.

x

Heimir : söngmálablað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.