Heimir : söngmálablað - 01.02.1938, Side 25

Heimir : söngmálablað - 01.02.1938, Side 25
H E I M I R 21 nemar“ eftir söngstjórann, Sig- urð Þórðarson. Síðan ávarpaði próf. theol. Magnús Jónsson kórinn, og þakkaði honum fyr- ir það landnám, er hann hafði numið meðal erlendra þjóða, ■og hrópuðu siðan áheyrendur ferfalt húrra fyrir kórnum. Fararstjórinn, próf. Guðþrand- ur Magmisson, þakkaði fyrir kórsins hönd. Síðan tók kórinn til óspilltra málanna, og rak nú hvert iag- ið annað. Fyrst „Kirkjuhvoll", •eftir Bjarna Þorsteínsson, sem sungið var veikt og hvislandi. Siðar voi'd sungin þróttmikil og stór kórverk, eins og „Brennið þið vitar“, eftir Pál ísólfsson, „Ólafur Tryggvason" ■eftir Reissiger og „Förumanna- flokkar þeysa“ eftir Ivarl Run- ólfsson, og siðast hressandi Vínarlag„Vor“, eftir Johann Strauss. Af textabókinni má sjá, hvaða lög kórinn hefir sungið i utan- förinni. Allt islenzk liig, eins •og vænta mátti, en maður sakn- ar þó islenzkra þjóðlaga, sem raddsett hafa verið fyrir fjór- ar karlmannaraddir, og ættu fyrst og fremst að syngjast í slíkum söngförum, eiiis og „Hrafninn flýgur“, „Ég veit ■eina baugalinu", „Keisari nokk- ur mætur mann“, „Bára blá“ o. fl. Mér þykir líklegt, að síð- asta lagið hafi ekki verið val- ið, ]>ar eð það liggur ekki fyrir einsöngvaral kórsins, Stefán Guðmundsson, óperusöngvara. Hinsvegar eru í bókinni „Is- land farsælda frón“ og „Græn- landsvísurnar" efiir Sigfús Einarsson, rammíslenzkar og byggðar á islenzku þjóðlagi. Útlendingar vilja fyrst og fremst kynnast sérkennum okk- ar í söng, og þau koma vitan- lega hvergi betur fram en í þjóðlögunum. Ekki er þetta „alveg nýr ■sönguiT lijá kóírnum, þvi að kórinn hefir sama svip og hann alltaf hefir haft. En söngurinn er betri en áður, þvi að hann er betur þjálfaður og öruggari en nokkuru sinni fyrr. Tenór- arnir eru bjartir og mjúkir, sveigjanlegir og sérstaklega lit- sterkir, en bassarnir hafa hins- vegar ekki mjúkan og hljóm- fagran blæ. Sum erlend blaða- ummæli lofa kórinn fyrir hinn norræna raddblæ. íslenzkar raddir eru sérstæðar. í beztu kórunum okkar er svipaður kórhreimur, þótt nokkur gæða- munur sé, og þcssi kórhreim- ur er allólíkur þvi, sem hann er í öðrum norrænum kórum, I. d. sænskum og norskum. Þetta kom greinilega í ljós á Þingvöllum í fyrrasumar, þeg- ajr „K arlakijr Reykjavíkur“, „Fóstbræður“ og sænski stú- dentakórinn sungu hver við annars lilið. Raddblærinn i ís- lenzku kórunum var keimlik- ur, mýkri og sakleysislegri en i sænska kórnum, en söngur sænska kórsins var eftir mínu viti þrungnari norrænum anda og krafti. Þrátt fyrir sönggleðina i

x

Heimir : söngmálablað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.