Heimir : söngmálablað - 01.02.1938, Blaðsíða 26

Heimir : söngmálablað - 01.02.1938, Blaðsíða 26
22 H E I M I R kórnum var ekki laust við að ])að segði til sín, að kórinn var búinn að æfa og syngja lcigin of lengi. Þess vegna var söng- urinn allvíða nokkuð mikið á yfirborðinu. Stundum var þó túlkunin djúp og innlífg, eins og í laginu „í rökkurrö hún sefur“ eftir Björgvin Guð- mundsson. Allmikilla tilþrifa gætti víða í söngnum, eins og í „Ólafpr 'Iryggvnson“ og „Förumannaflokkar þeysa“. Söngurinn er þrautæfður. Hver maður í kórnum kann sitt hlut- verk og liggur ekki á liði sínu. Kórnum má líkja við gott hljóð- færi i höndum söngstjórans. Söngstjórinn, Sigurður Þórðar- son tónskáld, er duglegur og smekkvís stjórnandi. Hann hef- ir verið stjórnandi kórsins frá byrjun.. Á hann að baki sér mikið og óeigingjarnt starf. Nú er hann farinn að uppsker i Irúrra þjóna laun. Undirleik á slaghörpij í nokkrutn lögum annaðist Fritz Weisschappel. Ný íslenzk sönglög. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að útgáfa islcnzkra tónverka er orðin að heita má fjárhagslega ókleif. Hefir svo veírið um nokkur á!r, og fer sífellt versnandi. Þess vegna liggur meginhlutinn af íslenzk- um tónverkum i handritum. Er ekki lengur sú öldin, er fölk eignaðist flestar nótnahækur, sem gefnar voru út, og kynnti sér og tileinkaði eftir beztu getu. Hér verða ekki orsakirn- ar raktar, sem að þessu liggja, |)ví að það hefir Björgvin Guð- mundsson gert í ítarlegri grein í „Heinti" árið 1936. Hér verður drepið á nokkur sönglög og sönglagabækur, sem blaðinu hafa borist. Kaldalóns gaf út nokkur sérprentuð liig, sem áður hefir verið minnst á hér í blaðinu, og nú síðast ein- söngslagið „Máninn“, við texta eftir Höllu Eyjólfsdóttur skáld- konu. Lagið er ljóðrænt og lag- rænt, og ber svij) af höfundi sínum. Halldór Jónsson, sókn- arprestur að Reynivöllum, gaf Út „Söngva fyrir alþýðu IV. Sálmalög." Þetta er fjórða sönglagaheftið, sem eftir hann birtist. L því eru 41 frumsam- in |.sálmálög. Þau eru látlaus og kirkjulega mótuð, og bera vitni um trúartraust höfundar- ins. Þorsteinn Jónsson frá Háreksstöðum, höfundur að „Vestrænir ómar“, gaf út „Hljómboðar I“, sem eru 39 sönglög, eðlileg og viðfeldin og likleg til vinsælda. Höfundur- inn er bróðir séra Sigurjóns i Kirkjubæ og Einars Páls Jóns- sonar, sem lög eru eftir í Org- antónum. Björgvin Guðmunds- son hefir og birt eftir sig sér- prentað lag, sem nefnist „Vopnafjörður“, við texta eft- ii Þorst. Gíslason, vel gert að vanda. „Hvar ert þú?“ nefnist vals eftir Oliver Guðmundsson, sem „Heinxir“ hefjr verið se’ndur. Lagið hentar sínum tilgangi, því það kvað vera gott að

x

Heimir : söngmálablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/601

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.