Alþýðumaðurinn - 14.11.1970, Blaðsíða 11
BÁRÐUR HALLDÓRSSON, menntaskólakennari, Akureyri:
Frjáls skoáanamyndim og Iýoræoi
UM FÁTT er nú meira rætt og
ritað en áhrif hinna svonefndu
fjölmiðla á skoðanamyndun
fólks. Ég rakst nýlega á það í
blaðagrein, að maður nokkur
setti fram þá skoðun sína, að
íslendingar væru ámóta van-
búnir að taka við sjónvarpi eins
og Afríkuþjóðir við stafrófinu.
Það er býsna mikið til í þessu,
því sjónvarpið gerir fjarlægðir
tíma og rúms hverfandi litlar
og er langáhrifamesta áróðurs-
tæki og tjáningamiðill okkar
tíma.
Það hefur verið sagt um ís-
lendinga, að þeir hafi aldrei orð
ið múgamenn, en slíkt má ein-
mitt skrifa á reikning samgöngu
leysis og strjálbýlis. Landið er
hrjóstrugt og erfitt yfirferðar,
en slíkt hindrar eðlilega skoð-
anaskipti manna og veldur
meiri grósku og fjölbreytni í
skaphöfn manna og skoðunum,
því gagnstætt því, sem vænta
mætti, hafa sjónvarp, útvarp og
dagblöð alið á múgmennsku og
linnið dyggilega að því að fækka
skapgerðardráttum íslendinga.
Á íslandi er því í fyrsta sinn að
myndast andrúmsloft múg-
mennskunnar. Við sjáum þess
daglega merki, ef grannt er að
gætt. Fjölmiðlarnir uppgötvuðu
t. a. m. fyrir skömmu, að til
væri nokkuð, sem héti mengun,
og með þeirra tilstilli hefur síð-
an geisað eins konar mengunar-
móðursýki, sem suma hefur
hrjáð svo illilega, að þeir sjá
hreinlega ekkert, sem orðið
gæti hrelldu mannkyni til bjarg
ar. Slíkar múgæsingar eru orðn
ar býsna algengar og eiga nær
undantekningarlaust rætur sín-
ar að rekja til fjölmiðlanna, sem
með einhæfum fréttaflutningi
æsa upp frumstæðustu hvatir
almennings, svo sem ótta og
hatur. Fréttir eru að mestu Ieyti
af ýmis konar skelfingaratburð-
um og hryðjuverkum, dregnar
eru upp hroðafengnar lýsingar
á ofbeldisverkum víðs vegar um
veröldina, en þess „samvizku-
samlega“ gætt, að sem minnst
megi fram koma af manngæzku
og heilbrigðu mannlífi, vand-
lega er þagað yfir því, sem eðli-
legt mætti teljast og á betri veg
fer.
Slíkur fréttaflutningur er
skaðlegur og óheiðarlegur.
Hann er óheiðarlegur af því
hann er ekki raunsannur, dreg-
ur aðeins upp skuggahliðar
mannlífsins og er þar af leiðandi
11
ungir
velja
VAIASH
pfi
ii m % t
.___' *
mm
: T
hættulegur siðgæðinu. Hann er
skaðlegur, af því að hann vekur
menn til ótta og knýr þá til að
mynda sér skoðanir, verða öfga
kenndar, frumstæðar og skyn-
semi sneyddar. Fyrir lýðræðið
er slíkur fréttaflutningur einkar
hreinna ávaxtabragö frá tŒf
Bárður Halldórsson.
skaðlegur, eins og nærri má
geta, þar eð alið er á þeim frum
hvötum, sem lýðræðið er meðal
annars sett utan um sem eins
konar rammi eða haft. Væri þá
ekki úr vegi að velta ögn fyrir
sér hugtakinu lýðræði, þessu
margbrjálaða orði, sem teygt
hefur verið og togað sem hrátt
skinn í hildarleik fjölmiðla og
stjórnmála fyrr og síðar. Mér
dettur ekki í hug sú goðgá að
bæta við það sundurleita sam-
safn skilgreininga, sem gefið
hefur verið því orði og förunaut
þess, frelsinu, en geng út frá
því sem trúarlegu dogma, fjar-
lægri draumsýn, sem stefna.ber
að, þótt ef til vill náist aldrei
nema í skottið á henni.
Leitin að lýðræðinu skiptir
því mun meira máli heldur en
skilgreiningar og fullyrðingar
um, hvort það sé heldur að
finna austan eða vestan Járn-
tjaldsins. Hins vegar væri vel
þess virði að ræða hvorum meg
in kútsins væri vænlegra að
hefja leitina og hvar væri helzt
von til þess að finna það ástand
og það andrúmsloft, það hugar-
far og þann þroska samfélags-
ins, sem gert gæti leitina heilla-
ríkari og hamingjumeiri.
Ég hef að nokkru kynnzt báð
um hliðum og velkist ekki í
nokkrum vafa um, hvorum meg
in manneskjan á sér meiri mögu
leika til framvindu og þróunar,
hvorum megin hún hafi þó
altent svigrúm til leitar og ráð-
rúm til skynsamlegrar yfirveg-
unar, því þótt margt megi að
lýðræði okkar finna og ýmsa
agnúa verði allir varir við, eru
samt möguleikarnir til þróun-
ar til staðar og það andrúms-
loft og þær aðstæður, sem kalla
byltinguna yfir sig, eru svo
fjarri okkur, að byltingaffólki
er af öllum þorra almennings
tekið með góðlátlegri kímni eða
algjöru fálæti.
Vandamál þjóðfélags okkar
eru að öllu jöfnu ekki þess eðlis,
að þau beri að leysa með snögg
soðnum byltingum, þótt auðvit-
að komi alltaf ýmis þáíi niál
fram, sem krefjast skjótra að-
gerða, en þær aðgerðir fara yfir
leitt fram innan ramma laga og
réttar.
Á síðustu tveimur til þremur
árum hefur nokkuð borið á ýms
um öfgahópum og ólgu í þjóð-
félagi okkar og horfa ýmsir með
ugg og skelfingu til þeirra. Ég
tel ekki ýkja mikla ástæðu til
þess að óttast þá hópa svo mjög,
því sá eiginleiki íslenzks þjóð-
félags að endurspegla ólguhreyf
ingar Evrópu tveimur til fimm
árum eftir að þær bar hæst á
meginlandi Evrópu virðist enn
ætla að fylgja okkur, og má ef
til vill rekja það til þess, að
námsmenn bera þær heim sem
fyrri daginn þrátt fyrir tilkomu
þeirra fjölmiðla, sem birta okk-
ur daglega fréttir af atburðum
líðandi stundar. Auk þess eru
sumar þessar hreyfingar hress-
andi og megna ef til vill að
þjappa okkur saman um þjóð-
skipulag okkar og fá okkur til
þess að meta kosti þess og galla,
vega og meta með okkur, hvað
er feyskið og fúið og hvað þarf
endurbóta við, án þess þó að
við látum blinduna ná slíkum
tökum á okkur, að við vörpum
því einnig fyrir róða, sem traust
er og haldgott og enn má á
byggja.
Ég lít svo á, að það sé í verka
hring þess flokks, sem kennir
sig til jafnaðarstefnu, flokks,
sem hafnar byltingu en styður
þróun, að gegna forystuhlut-
vei'ki í leit okkar að lýðræðinu,
bæði sökum þess, að hann á
drýgstan þátt í mótun íslenzks
þjóðfélags og innan vébanda
hans ætti að vera mest svigrúm
til skoðanaskipta, þar sem trúin
á óumbreytanleíka þess, sem er
og verður, á sér fáa formæl-
endur. Flokkurinn verður jafn-
framt að hafa í huga, að sú leit
má ekki verða handahófskennd
og hinn gullni vegur meðalhófs-
ins er ekki ætíð skínandi bjart-
ur, heldur toi'farinn og vand-
rataður, en hann er þó vænlegri
til lausnar en þær glæsigötur,
sem finna má til beggja handa,
þar sem menn hafa sér að leiðar
ljósi uppþornaðar kenningar
eða dýrslegar frumhvatir, sem
hneppa menn í viðjar sínar og
veita lítið svigrúm til þroska og
þróunar.
r • •
KAUPMENN - KAUPFELOG
TORO-súpur
RUSKOLINE-kryddrasp
- ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI
JOHN LINDSAY HF.
GARÐASTRÆTI 38 - SÍMI (96) 2-64-00
Sjálfvirkar
þvottavé - VERÐ FRÁ KR. 25.000.00 lar
Eldavélar - VERÐ FRÁ KR. 16.100.00
Kæliskáj - VERÐ FRÁ KR. 24.300.00 Nýkomið! JÁRN- 06 GLERVÖRUDEILD >ar