Alþýðumaðurinn - 14.11.1970, Side 15
TRYGGVl SIGTRYGGSSON, bóndi, Laugabóli, Reykjadal:
Alþýáuflokkurmn og sveitirnar
ALÞÝÐUFLOKKURINN hefur
alltaf átt sitt aðalfylgi í kaup-
stöðum og kauptúnum, og verið
litið á hann sem flokk alþýð-
unnar í bæjunum.
En margt af því, sem hann
hefur barizt fyrir og borið fram
til sigurs, hefur þó haft mjög
mikil áhrif á líf og afkomu
sveitamanna.
í því sambandi vil ég fyrst
foenda á baráttu flokksins fyrir
bættri afkomu almennings, sem
borið hefur mikinn árangur.
Hefur það orðið til þess, að
kaupgeta almennings í bæjum
er miklu meiri en annars, og
þar af leiðir, að þar er nú mikill
markaður fyrir landbúnaðar-
vörur, og er sá markaður nú
það sem mestu veldur um að
gera landbúnaðinn lífvænlegan.
' Það sem ég vil næst benda á,
er barátta Alþýðuflokksins í
tryggingamálum. Nú má segja
að Almannatryggingar veiti
ómetanlegan stuðning öllum
þeim, sem annars hefðu búið
við lökust kjöiysvo sem barna-
Tryggvi Sigtryggsson.
fjölskyldum, öryrkjum og eldra
fólki. Það má segja um sumt
eldra fólkið, að nú hefur það
fyrst á ævinni dálitla peninga
undir höndum og þarf ekki að
verða öðium til byrði. Það skal
NORÐLENDINGAR!
Höfum mesta
BÍLAÚRVALIÐ.
Lítið inn til okkar,
er þið komið til Reykjavíkur.
BÍLASALA GUÐMUNDAR
Bergþórugötu 3, símar (91) 1-90-32 og (91) 2-00-70
Hver leggur ekki metnað sinn í aS hafa
heimili sitt vistlegt og þægilegt, heimilis-
fólki til ánægju og gleSi? Á ferðalögum
er ekki síöur ánægjulegt aS búa vistlega
og þægilega.
Hótel eru heimili þeirra sem þar dvelja.
Viö leggjum metnað okkar í að búa sem
bezt að gestum okkar, þannig að dvöl
þeirra verði sem ánægjulegust.
HEIMIU ÞEIRRA ER REYRJAVÍK GISTA
nV
viðurkennt, að ýmsir mætir
menn úr öðrum flokkum hafa
stuðlað að uppbyggingu trygg-
inganna, en þær komust þó á
fyrst og fremst fyrir atbeina A1
þýðuflokksins.
Þá vil ég minnast á bein
afskipti forustumanna flokksins
af landbúnaði. Hefur þar borið
mest á tillögum Gylfa Þ. Gísla-
sonar um nauðsyn á bættu
skipulagi á framleiðslu land-
búnaðarvara.
Ekki get ég sagt að ég sé sam
mála öllu því, sem Gylfi hefur
um þetta sagt, en þó tel ég til-
lögur hans einhverjar þær raun
hæfustu sem komið hafa hér
fram í seinni tíð um þau mál.
Það sem ég vil leggja áherzlu á
í þessum málum er þetta fyrst
og fremst:
Það þarf að stefna að því að
framleiða sem minnst af þeim
vörum, sem ekki er hægt að
selja nema fyrir lítið brot af
framleiðslukostnaði. Þarf þar
að leita allra ráða til að breyta
að einhverju leyti um fram-
leiðslu.
Annað sem ég vil benda á er
það, hve jarðir eru misgóðar til
búskapar. Hygg ég, að nú sé
búið á allmörgum jörðum, sem
tæplega geta borið svo stórt eða
arðsamt bú, að ábúandinn hafi
sæmilegar tekjur. Tel ég fulla
ástæðu til að hjálpa þeim bænd
um til að losna við slíkar jarðir,
og flytja að betri atvinnuskil-
yrðum. Þar má ekki sýna neina
viðkvæmni gagnvart því, þó
nokkrar jarðir fari þannig í
eyði. Hér þarf það að verða
aðalatriðið að allir geti notið
góðra afkomuskilyrða.
Gunnar Bjarnason sagði ný-
lega frá þróun þessara máli í
Noregi. Taldi hann, að jafnaðar
menn í Noregi hefðu unnið að
því að undanförnu að hætt yrði
búskap á minnstu jörðunum eða
tvær litlar jarðir sameinaðar.
Taldi Gunnar, að við þetta hefði
meðalbúig stækkað allmikið og
afkoma bændanna batnað, og
• f VETRAR-
KULDUNUM:
S WEB A
RAFGEYMAR
M ANN
OLÍU- og LOFTSÍUR
ÞÓRSHAMAR H.F.
Varalilutaverzlun.
Sími 1-27-00.
ættu norskir bændur jafnaðar-
mönnum mikið að þakka í þessu
efni, — þó . gat hann þess, að
bændurnir þökkuðu það ekki
eins og vert væri.
Ég er þess fullviss, að Alþýðu
flokkurinn hér vill vinna að um
bótum á íslenzkum landbúnaði
í líka átt og ég hef talað hér um,
enda hefur hann samþykkt
ályktanir í þessa átt. Tillögur
Gylfa Þ. Gíslasonar virðast mér
stefna í þessa átt, og tel ég þær
mjög tímabærar.
ELSA Þ. AXELSDÓTTÍR, Þórshöfn:
Sfaða kcnunnar í
NÚ UPP á síðkastið hefur
óvenju mikið verið rætt og rit-
að um konuna og stöðu hennar
í þjóðfélaginu.
Rauðsokkahreyfingin hefur
rutt sér til rúms, og er því vel
farið á margan hátt.
Konur hafa of lengi staðið
hjá, og látið karlmennina hugsa
fyrir sig. Því fyrr, sem það
breytist, — því betra. Gætu
kvenfélög, viðsvegar um landið,
ekki bofið fram lista við næstu
bæjar- og sveitarstjórnakosn-
ingar?
Mjög ber að fagna konu í ráð
herrastóli, í fyrsta skipti á ís-
landi. Ætti það að vera nokkur
uppörvun fyrir veikara kynið.
Virðingarmesta staða konunn
ar og jafnframt minnst áberandi
verður þó sennilega um nokk-
urn tíma enn: „Heimilið og
barnauppeldið."
Hvaða kona vill skipta og
fara t. d. út að byggja bílskúr
yfir heimilisbílinn?
SKERMAGRINDUR í loft og á lampa.
LEÐURVINNSLUJÁRN,
Sniðin VESKI og REIMAR,
BÓKABÚÐIN HULD
AKUREYRI - SÍMI 1-14-44
Oss er það ánægja, að á sama tíma
og vér óskum
ALÞÝÐUMANNINUM
til hamingju með fertugsafmælið,
getum vér boðið yður inn í
nýja verzlun
að Brekkugötu 3 —
og veitt yður bctri þjónustu.
LEÐURVORUR H.F.
- AKUREYRI -