Stúdentablaðið - 01.02.2010, Qupperneq 12
¥
• •
Að þeim væntingum undanskildum er margt
sem hefur áhrif á það sem hver og einn vill
finna í fari hins kynsins. Fólk hefur mismunandi
persónuleika, áhugamál og skoðanir. Einstaklingur
sem er glaðlyndur og áhugasamur um íþróttir og
heilsurækt er til að mynda ekki mjög líklegur til að
finna sér maka sem er staðallmynd óheilbrigðinnar.
Líkur sækir llkan heim segir máltækið. Fólk er mun
líklegra til að finna sér maka sem er svipaður í útliti
og það sjálft, er á svipuðum aldri, hefur svipað
gildismat, svipaðar stjórnmála- og trúarskoðanir,
svipaða menntun og svo framvegis. Það er því ekki
að ástæðulausu sem pör eru oft lík að mörgu leyti.
En burt séð frá þessu og þrátt fyrir smæð landsins
þá eru fæst pör spegilmynd hvors annars. Við viljum
fæst eiga maka sem er alveg eins við sjálf. Við
viljum geta skipst á skoðunum og geta vegið hvort
annað upp þegar á þarf að halda og stuðst við ólíka
styrkleika hvors annars.
Þrátt fyrir fjölbreytileikann í samskiptum kynjanna
og ólíkar aðstæður þegar kemur að kynnum
fólks á sviði stefnumótanna hér á landi virðist
þróunin öll vera I átt að meiri nútímavæðingu
og virðast netsamskipti að ná yfirhöndinni. Það
er þó spurning hvort það er sú þróun sem við
viljum sjá í þessum efnum. Það má spyrja þeirrar
spurningar hvort ekki sé þörf á skýrari þróun í
átt að persónulegri samskiptum þar sem fólk
slítur sig örlítið frá tölvuskjánum og sýnir meira
frumkvæði í samskiptum sínum hvert við annað
án skjóls tölvunnar og SMS-skilaboða. Það væri þá
hugsanlega til þess að rómantíkin og raunverulegur
áhugi tæki völdin.
Aron Björn Kristinsson og Margrét Oddsdóttir
NYJAR LEIÐIR
í LEIT AÐ
ÁSTINNI
Fyrir nokrum árum hóf SkjárEinn sýningar á þætti sem eflaust margir muna eftir. Þetta
var stefnumótaþátturinn Djúpa laugin. Eftir nokkra ára hlé hefur verið ákveðið að taka
upp þráðinn, í þetta sinn undir stjórn þeirra Röggu (Ragnhildur Magnúsdóttir, dagskrár-
og kvikmyndagerðarkona) og Tobbu (Þorbjörg Alda Birkis Marínódóttir, blaðamaður og
bloggari). Blaðamaður settist niður með hinum nýju stjórnendum
og spurði þá spjörunum úr.
Þótturinn unninn út frá breyttri
stefnumótmenningu
"Á 10 ára afmæli SkjásEins var kosið um hvaða þátt
fólk vildi helst fá aftur og stóð Djúpa laugin þar
uppi sem vinningshafi. Þess vegna var ákveðið að
byrja með þáttinn á ný," segirTobba. „Auk þess
er hin svokallaða deitmenning að breytast mjög
mikið á íslandi og okkur þótti kjörið að koma með
svona þátt nú þegar fólk er orðið opnara fyrir nýjum
og skemmtilegri leiðum við að finna ástina," bætir
Ragga við glaðlega.
„Það verða gerðar miklar breytingar á þættinum
en við getum þó að sjálfsögðu ekki skýrt frá
þeim öllum hér, þetta kemur allt í Ijós þegar
sýningar hefjast," segirTobba einnig. „Við
getum þó sagt frá því að við ætlum að stíla inn
á breytta stefnamótahegðun íslendinga," bætir
Ragga við. „Fólk vill ekki lengur vandræðaleg
veitingahúsastefnumót, fólk vill gera eitthvað
skemmtilegt saman, t.d. fara í klifur, göngur eða
elda saman þannig að við ætlum að hafa þetta
12 STÚDENTABLAÐIÐ
eins skemmtilegt og það mögulega getur orðið
og draga eins og við getum úr púkalegum og
vandræðalegum atriðum. Einnig ætlum við að
bæta inn í þáttinn innslögum, bæði hjálplegum
stefnumótainnslögum og svo gríninnslögum."
Ragga tekur þó fram að grunnatriðin verði þau
sömu, ein manneskja spyrji þrjá aðila spurninga og
velji síðan einn þeirra að lokum. Parið fær sfðan
ferðalag (vinning.
Hressandi og skemmtileg leið til að kynnast
áhugaverðu fólki
Tobba segir að hún heyri oft út undan sér að fólk
haldi að það sé ekki týpan í það að taka þátt í
svona þætti. En hún segir að ef fólk sé týpan í að
verða ástfangið þá sé þátturinn fyrir það. „Þetta
er hressandi og skemmtileg leið til að kynnast
áhugaverðu fólki. Vill fólk frekar hittast á djamminu
þar sem engin leið er að vita hvort þið eigið vel
saman og vakna svo daginn eftir með SMS og
muna ekkert eftir því hvernig gaurinn eða pían
var?" spyr Tobba.
„Við erum að leita að mjög breiðum hópi af
fólki. Þú þarft að vera orðin tvítug eða tvítugur
en við erum þó alls ekki bara að leita að fólki á
þrftugsaldri. Við viljum allar týpur f þáttinn, unga,
eldri, samkynhneigða og í raun bara alla sem eru
opnir og hressir og vilja kynnast öðrum þarna úti,"
segir Tobba enn fremur.
„Við getum lofað fólki skemmtilegri upplifun og við
hvetjum alla einhleypa háskólanema til að skrá sig
og fylgjast með. Djúpa laugin er komin á Facebook
og skráning fer fram á skjarinn.is," segja þær
vinkonur að lokum og minna á að sýningar hefjast
12. febrúar.
Ásdís Auðunsdóttir