Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 01.02.2010, Qupperneq 14

Stúdentablaðið - 01.02.2010, Qupperneq 14
Fjölhæfur verðlaunahöfundur og fjögurra barna faðir Þann 1. desember síðastliðinn tilkynnti Alfred Toepfer stofnunin að Andri Snær Magnason rithöfundur yrði þess heiðurs aðnjótandi að hljóta Kairos-verðlaunin 2010. Þau nema 75 þúsund evrum, jafnvirði 13 milljóna króna, og eru talin ein af virtustu menningarverðlaunum Evrópu og eru nú veitt í þriðja sinn. Verðlaunaafhendingin ferfram þann 28. febrúar næstkomandi í Hamborg, heimaborg Alfred Toepfer stofnunarinnar en kaupmaðurinn Alfred Toepfer setti stofnunina á laggirnar árið 1931. Markmið stofnunarinnar er að stuðla að menningarlegri fjölbreytni á milli Evrópulandanna. Andri Snær hefur skrifað ýmis verk um ævina, bæði skáldsögur, barnabækur og leikrit. Hann hefur gefið út Ijóðabækur, unnið með tónlistarmönnum að útgáfu geisladiska og komið að hugmyndavinnu með arkitektum fyrir ýmsar skipulagningarsamkeppnir svo fáeitt sé nefnt. Hver voru þín fyrstu viðbrögð við fréttunum? Þetta var eiginlega þannig að Elín Hansdóttir listakona hringdi í mig og sagði mér frá þessum verðlaunum og ég hélt að ég hefði kannski verið STÚDENTABLAÐIÐ tilnefndur en svo sagði hún mér að ég hefði fengið þau og ég var náttúrulega mjög hissa. Þetta var hálfóraunverulegt, eins og að hafa unnið í Happdrætti Háskólans! Ætlar þú að vera viðstaddur verðlaunaafhendinguna þann 28. febrúar? Já, þetta er risadæmi hjá þeim, örugglega þúsund manna athöfn í stórum sal í barokkstíl á við Borgarleikhúsið að stærð. Emiliana Torrini spilar, Hilmar Örn, Steindór og Páll með steinhörpuna þannig að það er öllu tjaldað til. Þú varst nýlega á kvikmyndahátíðinni í Amsterdam þar sem kvikmyndin Draumalandið var sýnd. Að hversu miklu leyti telur þú að verk þitt Draumalandið, bæði bókin sem kom út 2006 og kvikmyndin sem kom út 2009, hafi haft áhrif á val dómnefndarinnar? Ég tel að það hafi örugglega haft talsverð áhrif en þetta eru náttúrulega ekki eins verks verðlaun. Þau veita þessi verðlaun fyrir mjög fjölbreyttan og réttast

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.