Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.02.2010, Side 18

Stúdentablaðið - 01.02.2010, Side 18
Rök með og á móti Icesave Margir hafa fengið sig fullsadda af lcesave-umræðunni. Einhverjir af þeim telja að pólitískt hagsmunapot hafi farið að einkenna umræðuna og gert hana klisjukennda. Það hlýtur að vera öllum hollt að lesa grein sem gefur fólki tækifæri á að mynda sér sínar eigin skoðanir á málum. Slíkt er markmið þessarar greinar þar sem farið er yfir stærstu rökin með og móti núverandi lcesave-lögum. Rætt er við EiríkTómasson lagaprófessor og Mariu Elviru Mendez Pinedo, dósent í Evrópurétti. Eiríkur Tómasson lagaprófessor Rök með: Efnahagsleg. „Samningur væri í höfn og allri óvissu þar með eytt, hægt er að færa rök fyrir því að óvissan hafi slæm efnahagsleg áhrif." Pólitísk. „Það er mín skoðun að það sé erfitt fyrir okkur pólitískt að draga núna allt I land og segja að við greiðum ekki fyrr en fyrir liggi dómsúrlausn." Rök á móti: Lagaleg. „Það hafa verið færð frambærileg lagaleg rök fyrir því að okkur beri að borga en ég tel að lagaleg rök gegn þvi vegi nú þyngra." Fjárhagsleg. „Einnig eru ýmsir sem telja að þó við eigum að taka á okkur skuldbindingar þá séu þær of miklar samkvæmt fyrirliggjandi samningi." Ovissu yrði eytt „Með samþykkt lcesave-laganna erum við búin að ná ákveðnum samningi um ríkisábyrgð sem Bretar og Hollendingar eru tilbúnir til að fallast á. Hér er um að ræða 20.889 evrur á hvern reikningseiganda í Bretlandi og Hollandi. Bretar og Hollendingar hafa nú þegar greitt þessar fjárhæðir og meira til auk þess sem þeir krefjast þess að Tryggingarsjóður endurgreiði þetta fé. Þeir eru tilbúnir til að veita okkur lán með tilteknum skilmálum og fara fram á að ríkið gangist í ábyrgð vegna of lítillar STÚDENTABLAÐIÐ greiðslugetu Tryggingarsjóðs. Með samþykkt þessara laga sem forseti hefur synjað staðfestingar þá er fallist á ríkisábyrgð. Sett eru viss skilyrði fyrir ríkisábyrgð í lögunum eins og að greiðslubyrði verði hófleg og einnig er inni ákvæði kennt við Ragnar H. Hall. Ákvæði það er að vísu ekki eins afdráttarlaust og I lögum frá því I ágúst. Að lokum, það seinasta sem mælir með því að menn samþykki lögin er að með því yrði allri óvissu eytt. Þar með værum við búin að taka á okkur tiltekna fjárskuldbindingu og málið þá leyst. Margir hafa einmitt talið að núverandi óvissa valdi okkur vandræðum við öflun erlends fjármagns. Lánshæfismat ríkisins hefur ekki verið metið hátt undanfarið og hefur lækkað í kjölfar synjunar forseta. Það hefur líka verið rætt um að á meðan lánshæfismat ríkisins sé svo lágt þá sé erfitt fyrir önnur fyrirtæki að fá lán, t.d. orkufyrirtækin." Lagaleg rök gegn lcesave sannfærandi „Fyrir það fyrsta telja margir að okkur beri ekki lagaleg skylda til þess að takast á hendur þessar skuldbindingar og fyrir því hafa að mínum dómi verið færð sannfærandi rök. Það er mitt mat að við myndum standa tiltölulega sterkt að vígi ef þetta mál færi til úrlausnar fyrir hlutlausum dómstóli. Þó verður að slá þann varnagla að málið er engan veginn unnið að mínum dómi. Það hafa verið færð frambærileg lagaleg rök fyrir því að okkur beri að borga en ég tel að lagaleg rök gegn því vegi nú þyngra. Síðan eru margir á þeirri skoðun og ekki slst af því að hvað eftir annað hafa forystumenn okkar lýst því yfir að við munum taka á okkur skuldbindingar vegna þessara reikninga I Bretlandi og Hollandi. Alþingi hefur svo ályktað um þetta þrisvar sinnum, ( desember 2008, ágúst 2009 og í lok desember 2009. Það er mín skoðun að það sé erfitt fyrir okkur pólitlskt að draga núna allt I land og segja við greiðum ekki fyrr en fyrir liggi dómsúrlausn. Jafnvel þótt stætt sé á því lagalega. Dómsúrlausn hefði verið möguleiki I upphafi og þann möguleika aðhyllumst við lögfræðingar almennt, að menn taki ekki á sig skuldbindingar nema að fengnum dómi. Einnig eru ýmsir sem telja að þótt við eigum að taka á okkur skuldbindingar þá séu þær of miklar samkvæmt fyrirliggjandi samningi. Hægt sé að leysa þetta mál þannig að okkar byrðir verði léttari, I þvl samhengi vísa menn oft I lögin frá I ágúst. Skilmálarnir í samningnum frá því I ágúst ganga lengra heldur en skilmálarnir samkvæmt núgildandi lögum. í lögunum frá því I ágúst þá var engin yfirlýsing um það að ríkisábyrgðin myndi gilda lengur en til 2024. Annað atriði breyttist einnig í seinni lögunum, að við tilteknar efnahagsþrengingar þá yrði ekkert greitt af láninu, hvorki afborganir né vextir. Nýju lögin gera hins vegar ráð fyrir því að jafnvel þótt illa standi á þá greiðum við alltaf vexti af láninu en afborganir frestist. I nýju lögunum er einnig dregið úr lagalegum fyrirvörum. I fyrsta lagi þá var því lýst yfir að ef úrskurðað yrði af einhverjum þar til bærum aðila að okkur bæri ekki skylda til þess að greiða þá myndi skuldbinding okkar á láninu falla

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.