Stúdentablaðið - 01.02.2010, Qupperneq 28
gamans. En ég þarf sem sagt að safna saman
1500 persónulegum undirskriftum með kennitölu
þannig að í rauninni gæti ég alveg staðið niðri á
Lækjatorgi með möppu og penna og spurt bara
vegfarendur hvort þeir vildu að ég yrði næsti forseti
landsins. Ég hitti meira að segja Ólaf Ragnarfyrir
algjöra tilviljun á verðlaunaafhendingu þar sem
ég var að fá viðurkenningu fyrir störf mln í tónlist
og fyrir þátttöku mína í mannréttindabaráttu
samkynhneigðra. Hann var að afhenda verðlaunin
og ég spurði hann bara að þvf hvað felst ( þessu
djobbi. En ég komst svo bara að því eftir að
hafa hugsað aðeins málið og fylgst aðeins með
honum að ég myndi aldrei nenna að vera forseti
lýðveldisins. Allar þessar móttökur og ferðalög og
viðburðir, þetta stoppar aldrei. Ég er ekki viss um að
ég myndi meika svona. Mér þætti þetta örugglega
hundleiðinlegt!
Þú gætir kannski fengið Dorrit lánaða, hún
myndi stela senunni.
Og ein að lokum, er von til þess að þú takir
aftur þátt í Eurovision?
STÚDENTABLAÐIÐ
vertið, er inni á YouTube að skoða lögin sem eru
komin inn. Þetta er pínu eins og jólaundirbúningur
hjá mér.
„Ef þú vaknar að morgni og byrjar
daginn á að blóta þegar þú slekkur á
vekjaraklukkunni þá get ég lofað þér
því að sú stemmning mun elta þig allan
daginn. Þú velur hvort dagurinn verði
góður eða slæmur. Þú hefur valkost.
Ég er löngu hættur að kalla það vandamál
ef eitthvað kemur upp á,
ég kalla það bara verkefni."
Hvað er það sem gerir þig svona jákvæðan og
glaðan?
Það eru genin. Ég er yngstur af sjö systkinum og
öll mín fjölskylda er svona. Fyrst og fremst genin
held ég. En svo verður maður líka að taka ábyrgð
á skapinu sínu sjálfur. Það er á mína ábyrgð að
ákveða hvort að dagurinn í dag verði góður dagur
og þá verður hann það. Ef þú vaknar að morgni
og byrjar daginn á að blóta þegar þú slekkur á
vekjaraklukkunni þá get ég lofað þér því að sú
stemmning mun elta þig allan daginn. Þú velur
hvort dagurinn verði góður eða slæmur. Þú
hefur valkost. Ég er löngu hættur að kalla það
vandamál ef eitthvað kemur upp á, ég kalla það
bara verkefni. Það er rétta orðið yfir það. Og það fá
allar manneskjur einhver verkefni á hverjum degi (
gegnum allt lífið. Þannig að bara henda öllu drama
út.
Já, mig langar það en þá fer ég líka með
keppnislag. Mér fannst Minn hinsti dans ekki
keppnislag, það var meira svona til að brjóta (sinn
og það lag varð að fara á sínum tíma. En ég vil
gjarnan fara aftur en ég geri það ekki fyrr en ég
heyri að rétta lagið er komið. Ég er alltaf að vinna
að einhverjum demólögum og ef ég heyri að
eitthvað demó gæti orðið kandídat í Eurovision-
sigurvegara þá tek ég það frá.
Steinunn Björk Bragadóttir
Já, eða kannski bara fundið mér kærasta sem væri
jafn mikíð glamúr og Dorrit. En svona í alvörunni,
eftir að hafa hugsað um þetta þá komst ég að því
að ég er bara langbest settur í nákvæmlega þeirri
stöðu sem ég er í dag. Ég er búinn að vera duglegur
að þjóna landinu með tónlistinni og öðru og er bara
svo sáttur við mitt hlutskipti sem tónlistarmaður
og skemmtikraftur þannig ég þarf ekkert að fara á
Bessastaði.
Plöturnar Allt fyrir ástina og Silfursafnið nutu
gífurlegra vinsælda þegar þær komu út og
njóta enn. Er von á nýrri plötu á næstunni?
Já. Ég er sko alltaf að vinna að einhverju nýju efni.
En málið er bara að ég vinn rosalega hægt, ég
tek ekki neinar ákvarðanir nema að vel athuguðu
máli. En um leið og ég er búinn að taka ákvörðun
þá breytist ég í jarðýtu og byrja að vinna af fullum
krafti og læt hendur standa fram úr ermum og
það er ekkert sem stoppar þessa jarðýtu fyrr en
verkefnið er klárað. En núna er ég á því stigi að
ég er að reyna að hlusta á og sjá listaverk eftir
aðra listamenn, hlusta á tónlist annarra, ég horfi
á bíómyndir og fer (leikhús, reyni að fá innblástur
og síðan er ég að reyna að gera eins mikið af
demóum, sem eru kannski bara mínútulöng, sem
ég veit ekkert hvað gæti svo orðið úr. En ég þykist
vera mjög góður í því að heyra hvenær demó getur
orðið að góðu popplagi. Það er eiginlega mín mesta
blessun, það og jarðýtuhæfileikinn.
Yrði það þá tónlist í takt við Allt fyrir ástina og
fyrri poppplötur?
Já, það verður popp! Svona dansskotið popp. Ég
stend sko og fell með diskóinu. Diskóið er minn
lífselixír.
En þegar þú ert ekki á fullu í tónlistinni, hvað
gerirðu þá til að slappa af og hvernig finnst
þér best að eyða frítíma þínum?
Ég reyni að vera duglegur í ræktinni. Reyni að fara
alla vega þrisvar í viku. Og ég passa mig alltaf á
því að þegar það er búin að vera löng helgi þá er
mánudagurinn algjör dekurdagur. Þá slappa ég af
með því að fara til dæmis í nudd og í heitu pottana
og dekra algjörlega við sjálfan mig. Þetta er eitthvað
sem ég verð að gera til að hlaða batteríin og geta
haldið áfram. Og ég verð að fá átta tíma svefn á
nóttunni, annars fúnkera ég ekki. En svona fyrir
utan að fara (ræktina þá reyni ég að njóta hinna
ýmsu lista. Ég reyni að horfa eins mikið og ég get á
bíómyndir, er stöðugt að hlusta á tónlist, bæði nýja
og gamla, og núna er líka byrjuð svona Eurovision-