Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.02.2010, Síða 33

Stúdentablaðið - 01.02.2010, Síða 33
Viðburðaskrá Ragnar Kjartansson í Hafnarborg Sýning á verki Ragnars Kjartanssonar, Endalok, sem var framlag fslands til Feneyjatvíæringsins 2009. Sýningunni lauk í Feneyjum í nóvember 2009 og vakti hún mikla athygli þarytra, bæði meðal áhorfenda og gagnrýnenda. Ragnar er kunnur fyrir fjölbreytt verk sín sem eiga rætur að rekja til ólíkra miðla, m.a. leikhúss, tónlistar, málverka og gjörninga. Sýningin samanstendur af tveimur verkum, Endalokum-Klettafjöluml sem er tónlistar-og myndbandsverk sem varpað er á fimm tjöld samtímis og Endalokum - Feneyjum sem er í raun afrakstur gjörnings Ragnars og félaga hans, Páls Hauks Björnssonar. Sá gjörningur stóð yfir allan sýningartíma Feneyjatvíæringsins þar sem Ragnar málaði eina portrett-mynd af Páli á dag. Afraksturinn er um 150 verk sem öll eru til sýnis í Hafnarborg. Sýningin verður opin til 28. febrúar. Emilíana Torrini í Háskólabíói Tónlistarkonan Emilíana Torrini átti mikilli velgegni að fagna á síðasta ári en hún gaf út plötuna Me and Armini sem hefur selst mjög vel, sérstaklega í Evrópu. Þar má meðal annars finna lagið Jungle Drum sem var mjög vinsælt á íslenskum útvarpsstöðvum sumarið 2009. I kjölfar útgáfunnar lagði hún upp í langt tónleikaferðalag þar sem hún hefur ferðast um allan heim. Meðal annars hélt hún tónleika f Ástralíu og Japan í kringum síðustu jól og áramót en hún er loksins á leiðinni til (slands þar sem hún heldur þrenna tónleika f Háskólabíói. Þegar er orðið uppselt á fyrstu tvenna tónleikana en miðasala á þriðju tónleikana er á midi.is. fónlist 15. febrúarkl. 20:00 Nýi kvartettinn heldur árlega minningartónleika til heiðurs Bergþóru Árnadóttur söngvaskáldi. Tónleikarnir eru haldnir í Salnum í Kópavogi. 21. febrúar kl. 20:00 Emilíana Torrini heldur langþráða tónleika á fslandi. Þegar er orðið uppselt á tvenna aðra tónleika sem haldnir verða f febrúar. Miðasala er á midi.is. 21. febrúar kl. 15:15 Úr ýmsum áttum - (slenski saxófónkvartettinn Sigurður Flosason og félagar flytja fjölbreytta dagskrá í Norræna húsinu. 25. og 26. febrúar kl. 19:30 Sinfóníuhljómsveit íslands fagnar 200 ára afmæli tónskáldsins Chopins. Einleikari er Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari en hann mun spila nokkur af verkum Chopins með aðstoð Sinfónfuhljómsveitarinnar. Miðasala á sinfonia.is. Myndlist Til 28. febrúar Hafnarborg - Hafnarfirði Sýning á verki Ragnars Kjartanssonar, Endalok, sem var framlag íslands til Feneyjatvfæríngsins 2009. 6. - 28. febrúar Sýning Guðrúnar Gunnarsdóttur haldin í Listasafni ASÍ. 6. - 28. febrúar Sýning Guðmundar Ingólfssonar haldin f Listasafni ASÍ. Sýningin samanstendur af Ijósmyndum en Guðmundur hefur stundað Ijósmyndun f yfir 40 ár. 12. febrúar Listasafn Reykjavfkur - Kjarvalsstaðir Sýningin Blæbrigði vatnsins opnuð. Litið eryfir 130 ára sögu vatnslitaverka á (slandi en á sýningunni eru hátt á annað hundrað verka eftir um 60 myndlistarmenn. 12. febrúar kl. 19:00-24:00 Safnanótt Fjölbreytt dagskrá verður í öllum húsum Listasafns Reykjavfkur: Hafnarhúsi, Kjarvalsstöðum og Ásmundarsafni. 13. febrúar Kling og Bang Sýningin Jaðar sýn - Peripheral Vision opnuð. Samsýning nokkurra listamanna á teikningum sfnum. Listamenn eru Bjargey Ólafsdóttir, Haraldur Jónsson, Hulda Vilhjálmsson, Ingibjörg Magnadóttir, Magnús Árnason, Marta María Jónsdóttir og Sigtryggur Sigmarsson. 25. febrúar Listasafn Reykjavfkur - Hafnarhúsið Sýning Katrínar Elvarsdóttur, Hvergiland, opnuð í D-sal safnsins. Kvikmyndir 16. febrúar kl. 17:00 Kvikmyndaklúbburinn Cine Club Hispano sýnir kvikmyndina Pantaleón y las visitadoras frá Perú. Myndin er frá 1999. Sýningin er f stofu 101 í Lögbergi, HÍ. 23,febrúar kl. 17:00 Cine Club Hispano sýnir kólumbísku kvikmyndina Maria llena de gracia (Maria full of grace). Myndin er frá árinu 2004 og fjallar um unga, ófríska konu sem gerist burðardýr fyrir eiturlyfjasmyglara til að afla fjár fyrir fjölskyldu sína. Aðalleikkona myndarinnar, Catalina Sandino Moreno, var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn. Sýningin í stofu 101 í Lögbergi, HÍ. Annað 14., 21. og 28. febrúar kl. 20:00 (slenski dansflokkurinn sýnir nýtt frumsamið verk eftir Alan Lucien Oyen, ungan norskan danshöfund. Sýningar eru á Stóra sviði Borgarleikhússins. Miðasala á midi.is. 20. febrúar kl. 11:00-16:00 Háskóladagurinn - Námskynning Kynning á grunnnámi í Háskóla íslands ásamt þjónustu, félagslífi skólans og fleira. Kynningar verða á Háskólatorgi, í Odda og Gimli. STÚDENTABLAÐIÐ

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.