Búnaðarrit

Árgangur

Búnaðarrit - 01.12.1916, Síða 10

Búnaðarrit - 01.12.1916, Síða 10
264 BÚNAÐARRIT andi blautum mýrum. Lömb geta þá orðið dauðloppin af kulda, þótt þau hafi nóga mjólk. Stundum fá þau þá líka krampa og drepast af honum. En sé lambfé í hlíð- um eða á nokkurn veginn þurru landi, þola lömbin bæði kulda og hret, ef þau að eins hafa nóga mjólk. Margir hafa sagt mér, að þetta vor hafi lömbin drepist mjög í hretunum, og vilja menn kenna þeim það eingöngu. En eg er sannfærður um, að lömbin hafa þá dáið aðal- lega af því, að þau höfðu ekki nóga mjólk. Það er alveg ótrúlegt, hvað holdið er fljótt að hrynja af lambám á vorin og mjólkin úr þeim, þegar þær eru gjaflitlar eða gjaflausar úti í kulda og gróðurleysi. Mörgum fanst ekki mögulegt að gefa lambánum, þegar þær voru orðnar svo margar, að húsrúm þraut, nema þá fyrir sumar. En þá var vel hægt að láta ærnar með elztu lömbunum liggja úti, en reka þær þó að og gefa þeim einu sinni á dag töðu, svo mikið sem þær vildu éta. Þá dugar heldur ekki að gefa neitt annað en töðu eða töðuígildi, og ef ærnar eru þá ekki í góðu standi, verður að gefa þeim einnig mat. Ærnar venjast fljótt á að koma að, til að fá gjöfina, og skeyta ekkert lömbun- um á meðan þær éta. Er bezt að hafa húsin opin á meðan, svo að lömbin geti verið úti. Þegar svona illa viðrar, er sjálfsagt að gefa og hýsa óbornar ær, og ávalt verður að hlynna vel að þeim fram í gróður, þar sem ekki eru því meiri haggæði. Eins og eg hefi drepið á áður, er eg viss um, að lambadauðinn, og jafnvel dauði á ám líka þetta vor, hefir orðið miklu meiri af því, að menn gáfu ekki ánum nóg rétt fyrir burðinn og á sauðburði. Eitt af því, sem miður fer, viðvíkjandi hirðing fjár- ins, er það, að fé er ekki vatnað svo sem vera ber. Nokkrir hafa þann sið, að vatna fé að eins annan hvorn dag, þegar inni er gefið, og mjög víða er það, þegar beitt er, að íé gengur illa að ná í vatn eða að svala sér, þegar enginn er lausasnjór og alt gaddfreðið. Þegar féð líður
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Búnaðarrit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.