Búnaðarrit

Årgang

Búnaðarrit - 01.12.1916, Side 12

Búnaðarrit - 01.12.1916, Side 12
266 BÚNAÐARRIT frekar heflr það fé drepist, sem engin hús hafði, eins og til dæmis í Grindavík; þar eru ekki hús yfir fullorðið fé, enda er fjárfellir þar mjög oft. Að hafa fé sitt húsalaust á vetrum er svo mikil óhæfa, að slíkt ætti alis ekki að þolast mönnum. Ofarlega á Rangárvöllum mun og vera fulltæpt um fjárhús. Eg vissi til þess, að um veturinn 1913 misti bóndi á Rangárvöllum töluvert af fé í fönn og læki, af því að hann hafði svo ófullkomin hús. Þágerði versta hríðarbyl 13. marz, svo að vart var „hundi út sigandi". Sauðir eru þær skepnur, sem helztgeta legið viðopinhús. Búast má við því, að mistök hafi orðið hjá sumum með fóðrun af því, að þeir hafi beinlínis gefið of naumt •eða ekki varað sig á, hvað heyin voru létt. Eitt hið öruggasta ráð til þess, að fé sé þolið í hörðu árunum, er það, að fóðra ávalt vel og láta féð aldrei verða magurt. Gemlingar, sem fá gott fóður, verða fyrst og fremst betri kindur til afurða og svo miklu betri í fóðri næsta vetur og svo alla tíð, og eins fá þeir þá betri filding, er helzt síðar; og ær, sem aldrei hafa orðið magrar, eru svo miklu þolnari. En kindur, sem eitt sinn hafa orðið magrar, þurfa svo lítið til þess að verða magrar aftur, eða þá sækir í sama horfið fyrir þeim. Loks má eflaust telja heyskort hjá stöku mönn- um eitt af því, er leiddi til vanhaldanna á fénu þetta vor. Sumir höíðu ekki hey til að gefa ánum nógu lengi um vorið. En það er svo oftast nær, að þótt menn sjái fyrir heyþrot, eru menn of seinir á sér með að afla sér korn- matar til að drýgja með heyin. Menn draga þetta á Ianginn, vonast eftir batanum þá og þegar og gera svo féð of magurt, áður en þeir íara að gefa því kornmat- inn. Vill það þá einatt til, að kornmatargjöfin kemur ekki að hálfu liði, því að magrar kindur geta ekki melt eins vel kraftmikið fóður, auk þess sem það getur valdið veikindum í fénu, að breyta snögglega til um fóður við það, fara t. d. alt í einu að gefa töluvert af kjarnmiklu fóðri, þegar féð heíir áður lifað eingöngu á léttu heyi.

x

Búnaðarrit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.