Búnaðarrit

Volume

Búnaðarrit - 01.12.1916, Page 13

Búnaðarrit - 01.12.1916, Page 13
BÚNAÐARRIT 267 Bændur ættu að hafa þann sið, að fá sér strax fóður- auka að hausti, ef þeir óttast eða sjá fram á það, að þeir séu ekki nógu birgir, ef illa árar. En við því verða menn ávalt að vera búnir. En hvað fóðurskortinum annax-s viðvíkur, þá er ó- hætt að fullyrða það, að á meðan hann á sér stað, og þar af leiðandi fénaðarfellir, verða bændur að meiru eða minna leyti að standa í stað og fara aftur að efnahag. Auk þess verður fjárfellirinn til þess, að stöðva verklegar framkvæmdir, bæði á almennum sviðum og hjá bændum yfirleitt. Þá veikir hann mjög lánstraust bænda og mann- gildi þeirra. Að drepa fénað sinn úr hor og hungri er alls ekki sæmandi siðuðum mönnum, auk þess sem það lýsir hinni mestu fávizku, þar eð það gerir bændur snauða. Mönnum er alveg óhætt að trúa því, að með heybirgð- um verða menn efnaðir, þótt menn setji færri höfuðin á. Reynslan hefir sýnt það. Enginn heflr orðið efnalítill fyrir gætilegan ásetning. Aftur á móti hefir reynslan sýnt það, að ógætilegur ásetningur heflr gert fjölda manna efna- lausa og landið sárfátækt.. Þetta er staðreynd, sem eng- inn getur hrakið. — Hér verður landbúnaðurinn hálfgert hrófatildur, þangað til bændur eru allir orðnir stálmúraðir í heyfyrningum. Það er markið, sem stefna skal að. Það hefir margoft verið um það rætt, hvaða ráð ætti að veita bændum til þess að komast í nógar heyfyrn- ingar. En eg vil halda, að það þurfi ekki að hjálpa þeim um nein ráð. Þeir þurfa að eins að viija það, og þá finna þeir ráðin. Til þess að sannfærast um að þetta sé satt, þarf ekki annað en benda á það, að þeir bændur, sem ávalt hafa nóg hey, eru raunar engu síður þeir, sem búa á rýrðarjörðum. Eitt af ,því, sem mjög mun ýta undir vilja bænda í þessu efni, er meiri fjárrækt. Með henni fá menn gagn- vart skepnunum meiri hugsunarsemi, sem kemur fram í betri ásetningi. Með kynbótum fjárins verður og betra að fóðra það.

x

Búnaðarrit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.