Búnaðarrit - 01.12.1916, Blaðsíða 36
BÍNAÐARRIT.
Athugasemd.
í öðru hefti Búnaðarritsins nú í ár hefir hr. fjár-
ræktarfræðingur Jón H. Þorbergsson gert athugasemd
við grein mína „Fóðureiningar".
Eg frétti til þessarar athugasemdar nokkru áður en
eg sá hana og hélt að hún mundi vera leiðrétting á
meinlegri óaðgæzlu-villu, er slæðst hefir í fóðureininga-
grein mína; en er eg sá hana, sá eg að svo var ekki.
Halldór Vilhjálmsson og Nils Hanson hafa vakið athygli
mína á villu þessari, og sjálfur varð eg hennar líka var,
er eg las greinina.
Villan er á bls. 69 og 70. Þar er farið eftir Land-
brugets Ordbog og sagt hvað Niis Hanson og Tilrauna-
stofan telji hæfilegt að gefa mjóllcurkúm. En í Land-
brugets Ordbog er talað um pundsfóðureiningar, og villan
er í því fólgin, að eg hefi ekki gætt þess að deila í þær
með tveimur, til að breyta þeim í Inlógramfóðureiningar,
svo það yrði í samhljóðan við greinina. Af þessu leiðir,
að neðst á bls. 69 á að vera 5 — 6,6 — 8,5— og 10 i stað
10 — 13,2 — 17 og 20 sænskar fóðureiningar, og á bls. 70
á að vera 7 — 8 — 9 — lOoglli stað 14 — 16 — 18 —
20 — 22 danskar fóðureiningar.
Af þessari villu leiðir svo þær, sem eru í íslenzku
kúnum. Við getum ætlað að þær þurfi 6—7 töðukílógröm
sér til viðhalds og 1,2—1,3 kg. af töðu í viðbót fyrir
hver 2 kg. af mjólk, er þær mjólki. Kýr, sem mjólkar