Búnaðarrit

Årgang

Búnaðarrit - 01.12.1916, Side 84

Búnaðarrit - 01.12.1916, Side 84
BDNAÐARRIT. Umsóknir til Búnaðarfélags íslands um styrk til nautgriparæktarfélaga 1917 þurfa að vera komnar til búnaðarfélagsins fyrir lok febrúarmánaðar. Hverri um- sókn þarf að fylgja reikningur félagsins fyrir síðasta reikningsár og skýrslur um fóður og mjólk, um fitu- mælingar, um nautahald og um eftirlitsstarfið. Til þess að fá betra heildaryfirlit og samræmi er áskilið, að öll fólögin hafi í skýrslum sínum sama verð á smjöri, mjólk og aðal-fóðurtegundum, þannig: smjör 1 kr. 60 aura, undanrenning 5 aura, taða og bezta flæði- engjahey 6 aura, úthey 4 aura, rófur og vothey l1/* eyri fyrir hvert kg. Annað fóður verður að reikna eftir gangverði. XJmsólsinii* um garðyrkjukenslu í gróðrar- stöðinni i Reykjavík 1917 sé sendar Einari garðyrkju- manni Helgasyni fyrir lok janúarmánaðar. Kenslutími 6 vikur, frá byrjun maímánaðar. Nemendur fá 40 kr. námsstyrk, og auk þess nokkurn ferðastyrk þeir sem langt eru að. Tilbúinn áburður og g-rasíræ. Samkvæmt ákvörðun Búnaðarfélags íslands panta eg tilbúinn áburð fyrir þá, sem þess óska. Til þess að áburðurinn geti komið nógu snemma, verða pantanir og áætlað andvirði að koma fyrir nýjár. Um verð er ekki enn hægt að segja neitt ákveðið. Þeir sem ætla að fá hjá mér grasfræ næsta vor, sendi mér pöntun fyrir nýjár. Verð þess greiðist við móttöku. Reykjavík 21. sept. 1916. Einar Helgason.

x

Búnaðarrit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.