Nýja stúdentablaðið - 01.12.1962, Síða 15
KÝJA STÚDENTABLAÐIÐ
15
Gestur fró Noregi
Torild Skard.
Um þessar mundir er stödd hér á
landi fulltrúi frá Oslo Studenttinget,
ungfrú Torild Skard, stud. ped. Hún
er hér í boði Stúdentaráðs í vikutíma
og tekur þátt í hátíðahöldunum 1.
desember(?). í fyrra kom hingað
Björn Petterson, stud. jur., en í vor
leið var íslenzkum stúdent, Inga Við-
ari Árnasyni, stud. philol., boðið að
vera við hátíðahöldin 17. maí, á þjóð-
hátíðardegi Norðmanna.
Ungfrú Skard var formaður Stúd-
entaþingsins síðastliðið ár og er nú
fulltrúi á þinginu.
Við höfum beðið hana að segja
pkkur frá ýmsu því helzta, sem er að
gerast í stúdentapólitíkinni við há-
skólann í Osló:
í háskólanum í Osló eru starfandi
fimm stjórnmálafélög. Stærst þeirra
er Den konservative Studenterforen-
ing, með a. m. k. 300 meðlimi. Næst
er Sosialistisk Studentlag, 250 með-
limir. Iiin þrjú minni eru Arbeider-
partiets Studentlag, Studentvenstre-
laget og Kommunistisk Studentlag.
Markalínan liggur milli íhaldsins
annars vegar og hinna fjögurra
vinstri félaga hins vegar.
Pólitísku átökin fara fram í Stu-
.dentersamfundet, sem hefur um 3000
meðlimi. Það er nokkurs konar mál-
fundafélag stúdenta. Þar eru haldnir
fjörugir pólitískir umræðufundir
vikulega. Kosin er 9 manna stjórn
pólitískri kosningu, þannig að annar
hvor aðili, hægri eða vinstri, fá alla
fulltrúana kjörna. Undanfarin tvö
missiri hafa hægri stúdentar haft
formennsku í félaginu. Undir stjórn
þeirra hefur mjög dregið úr starf-
semi félagsins út á við. Þeir hafa oft
fengið presta til að halda fyrirlestra
og koma af stað umræðum. Og má
ýmsar ályktanir af því draga. Þegar
Kúbumálið var á dagskrá, komust
þeir ekki hjá því að hafa fund þar að
lútandi. Að vísu var frummælandi
ekki prestur 'heldur einhver blaða-
maður. Uumræður urðu heitar, en
engin ályktun hlaut tilskilinn meiri-
hluta.
Hinn 24. nóvember sl. urðu stjórn-
arskipti í félaginu og fengu vinstri
menn meiri hluta. Stúdentafélagið
hefur mikil áhrif á landspólitíkina.
Dagblöðin hampa mjög ályktunum
þess. Aðgerðir þess vekja ætíð mikla
athygli. Það hefur beitt sér fyrir
ýmsum mótmælaaðgerðum, t. d. í til-
efni af komu Speidels. Einnig hefur
það mótmælt kjarnorkuvopnum og
atburðunum í Ungverjalandi. Einnig
var það fyrir tilstilli Stúdentafélags-
ins, að Afríku-ráðstefnan var haldin.
Ég segi ykkur frá henni á eftir.
Studenttinget, sem samsvarar
Stúdentaráði hér, er hins vegar ekki
pólitískt. I því sitja nú 58 fulltrúar,
sem kosnir eru á almennum stúdenta-
fundi í hlutfalli við fjölda stúdenta.
Hlutverk þess er að halda uppi ým-
issi starfsemi stúdenta, t. d. Stúd-
entagörðum, bóksölu, bókaútgáfu,
hóteli, ferðaskrifstofu og ýmsu
fleiru. Veltufé þess er ca. 180 millj-
ónir íslenzkra króna. Þar í er inni-
falin fjárveiting ríkisins. Ég var for-
maður þingsins í fyrra, ekki vegna
þess að ég er sósíalisti, heldur þrátt
fyrir það. Ég var nokkurs konar ,,ex-
periment“, bæði vegna þess að ég var
pólitísk, og auk þess var ég fyrsti
kvenformaðurinn. Formaðurinn er
kosinn til eins árs í senn.
Ég er félagi í Det sosialistiske stu-
denterlag; hef verið formaður í því.
Við gefum út blaðið Underveis, það
kernur út 7 sinnum á ári. Blaðið er
ekki selt heldur gefið, og er það því
svo fátækt, að við höfum reynt að
afla fjár með því að selja blóð okkar
á spítalana! Við höfum ekkert rússa-
gull! Hins vegar er ritstjóri blaðs
íhaldsstúdenta launaður af flokknum
sjálfum.
Stúdentar skiptast nokkurn veg-
inn jafnt í tvo hópa um afstöðu til
Efnahagsbandalags Evrópu. Fyrir
einu ári var haldinn umræðufundur í
Stúdentafélaginu um þetta mál, og
voru bornar upp þrjár tillögur: ein
um fulla aðild, önnur um aukaaðild
og hin þriðja gegn aðild. Tillagan um
fulla aðild var felld, sú um aukaaðild
virtist við handauppréttingu fá meiri
hluta, en í ljós kom við leynilega at-
kvæðagreiðslu, að tillagan gegn aðild
var samþykkt.
Eins og kunnugt er, tóku flokk-
arnir við þingkosningar 1961 ekki á-
kveðna afstöðu til EBE að undan-
skildum kommúnistum og sósíalist-
um. Hins vegar tóku þeir þá afstöðu
eftir kosningar, sem leiddi til þess, að
inntökubeiðni var send EBE í apríl
1962. Almenningur í landinu hefur
samt aldrei haft tækifæri til að láta
í ljós álit sitt. Inntökubeiðnin þarf %
hluta atkvæða á Stórþinginu, og féllu
atkvæði svo, að aðeins einn þingmað-
ur þarf að breyta afstöðu sinni, til að
hún verði felld.
Jón E. Ragnarsson, formaður stúd-
entaráðs ykkar, spurði mig um dag-
inn um álit mitt á því, sem hann kall-
aði Oslo-festival! Hann hefur víst átt
við Afríku-ráðstefnuna, sem haldin
var í Oslo í ágúst sl. og stóð yfir í
þrjár vikur. Ráðstefnan var haldin
(Framh. á bls. 23.)