Nýja stúdentablaðið - 01.12.1962, Qupperneq 24

Nýja stúdentablaðið - 01.12.1962, Qupperneq 24
24 NÝJA STÚDENTABLAÐIÐ PRJÓNASTOFAN SÓLIN (Framh. af bls. 17.) plaggötin sem hann hefur fest uppá (svo!) hurðirnar“. Plaggötin áttu þannig að fara hvort á sína hurð; og gott leikskáld hefði ósjálfrátt séð fyr- ir sér, á hvorri hurðinni fyrra plagg- ið var og ekki látið sig henda að líma seinna plaggið oní það. Halldór Kiljan er ekki nær því en áður að skrifa fullburða leikrit; og ég hef litla trú á því, að honum takist það. Hann hefur sjálfur lýst því, með réttu, hve leikritið sé miklu naktara form en skáldsagan; í sög- unni er sem sé hægt að berja í ýmis- konar bresti með stílbrögðum og mál- snilld — og það hefur Kiljan ekki sparað. Hann kemur því ekki við í leikritum; og undirritaður vill láta þá skoðun í ljós að leikritun hans bendi óviljandi á veilurnar í skáld- gáfu hans. Ég hygg hann ætti að hverfa aftur til skáldsögunnar og una við hana, meðan enn er verkljóst við borðið. Bjarni Benediktsson. Félag róttækra stúdenta. Aðalfundur Félags róttækra stúdenta var haldinn 12. nóvember sl. Fundarsókn var góð. Kjörin var ný stjórn. I henni eiga þessir sæti: Þorvarður Brynjólfsson, stud. med., formaður. Jón E. Gunnlaugsson, stud. med., gjaldkeri. Ingi H. Ingimundarson, stud. jur., ritari. Meðstjórnendur: Ari Jósefsson, stud. mag., Ársæll Jónsson, stud. med., og Gunnar Gunnarsson, stud. polyt. í Rauðku, fulltrúaráð felagsins, voru kosin: Guðrún Hallgrímsdóttir, stud. mag., Bjarni Þjoðleifsson, stud. med., Helgi Valdimarsson, stud. med., Svavar Sigmundsson, stud. mag., Magnús Jóhannsson, stud. med., og Olafur Ragnarsson, stud. jur. Hver verður formaður? Blaðið hefur fregnað, að sá maður, sem Sjálfstæðisflokkurinn muni tefla fram í lagadeild við næstu stúdentaráðskosningar, heiti Styrmir Gunnarsson, og muni hann eiga að verða formaður stúdentaráðs, ef hann nær kjöri, og Vaka meirihlutaaðstöðu í ráðinu með „hlutleys- ingjurn". Þetta er einmitt sá sami Styrmir Gunnarsson, sem á síðast- liðnum vetri heimtaði í Morgunblaðinu öflugustu varnarvopn, sem vestræn lýðræðisríki hefðu yfir að ráða til vama íslands. Óþarfi er að taka fram, að það, sem hann átti við, voru kjarnorku- eldflaugar og kafbátar. „Flottræfilsháttur Garðbúa.“ Óánægja ríkir meðal Garðbúa, vegna þess að í vetur féll niður þvottaþjónusta sú, sem lengi hefur verið. Búið með það. Verða Garð- búar nú að þeysa um bæinn, hver í sitt þvottahús. Ýmsir þvo þó af sér sjálfir og eiga sér snúru í herberginu, þurrka þar lín sitt en strauja í eldhúsi. Þekkjast nú margir Garðbúar frá öðrum stúdentum á krumpnum skyrtum og þrælabrotum. Þyngdarpunktur stúdenta. Háskólabyggingin virðist nú að flestu leyti orðin þröngur stakkur fyrir starfsemi háskólans. Stafar það af því, að þeir sem byggingar- málum háskólans réðu, báru ekki gæfu til að spá fram í tímann, bæði um fjölgun stúdenta og aukna meðalhæð þeirra. Hið síðarnefnda sést glögglega á handriðinu. Liggur þyngdarpunktur flestra stúdenta nú langt yfir því, og er margur glæsilegur akademíkerinn mun ófrjálslegri en ella í kortémnum sakir fallhættunnar um það. Til varnar eiga sumir þann mótleik að tylla bossanum utan í handriðið, beygja knén eilítið og húka framhallir, þar til næsta kennslustund hefst. Væri annars ekki ráð, annaðhvort að hækka handriðið, svo að hægt sé að styðja sig við það, eða lækka það, svo að hægt sé að sitja á því. Prófhressing. Prófessor Steingrímur J. Þorsteinsson, prófstjóri, hefur sýnt mjög lofsverðan velvilja og hugsunarsemi við prófmenn. Á síðastliðnum vetri kom hann fyrir í súlnaganginum við hátíðasalinn setustofu með dúk- uðum borðum og þægilegum stólum. Auk þess voru á borðunum blóm í vasa. Fyrir skriflegu prófin opnar hann dyrnar að hátíðasalnum og leikur af plötum verk sígildra meistara. Berast tónarnir um allan skólann, fólki til hugarhægðar og yndisauka. Með þessu tekur hann sárasta hrollinn úr þeim, sem eiga eldraunina framundan. Krónan. Sbúdentum mun flestum hafa orðið litið upp í hvelfinguna í forsaln- um (undanteknir eru auðvitað Vökumenn, því þeir líta aldrei svo hátt) og greint lítinn staut, sem gengur niður úr henni miðri. Guðjón heitinn Samúelsson húsameistari hafði ráðgert, að þarna yrði hengd upp dýrð- leg ljósakróna, gerð af silfurbergi og fleiri góðum íslenzkum steinum. Ekki hefur orðið meira úr framkvæmdum en stauturinn. Matsalan á Garði. Undarlegt má það heita, ef matsalan á Garði ber sig ekki núna éins hátt og verðið er, og auk þess með tilliti til, að u. þ. b. 120 Garðbúar eru í skyldufæði eina máltíð á dag. Kostar það á mann 600 krónur á mánuði, samtals 72 þúsund krónur. Auk þess borða flestir báðar mál- tíðirnar á matsölunni. Beri hún sig ekki, á enn að hækka fæðisverðið. Þessi starfsemi greiðir hvorki skatta né húsaleigu, eins og matsölu- húsin í bænum. Þar við bætist, að þetta er sjálfsafgreiðsla. Hvar liggur fiskur undir steini? Gömul saga og ný. Gömul saga segir frá Don Quixote, riddaranum sjónumhrygga, og hestasveini hans, Sancho Panza. Don Quixote var síðasti riddarinn. Veröldina sá hann með öðrum augum en aðrir. Hann unni þeirri konu, er Dulcina hét hin fagra. Hún var hans hugarfóstur. Gerði hann títt leit að henni, og lenti þá æ í bardögum. í einni slíkri kom hann í korn- yrkjuhérað. Á ökrum vann fólk við uppskerustörf, en myllur snerust fyrir vindi og möluðu korn. Don Quixote sá í vindmyllunum hersveit óvina. Með nafn Dulcinu hinnar fögru á vörunum hleypti hann hesti sínum til orustu. Fyrsta vindmyllan sló til hans, svo að hann hófst á loft og féll særður til jarðar. Á eftir kom Sancho Panza á asna sínum. Sama á sér stað enn í dag. Þann 1. desember sl. barðist Geir Hall- grímsson við sjálfsblekkingu sína með nafn hinnar heittelskuðu Am- eríku í huga. (---------------------------------------------------------------\ NÝJA STÚDENTABLAÐIÐ. — 30. árg. 1. tbl. 1962. — Útgef.: Félag róttækra stúdenta. — Ritstj. og ábm.: Hanna Kristín Stef- ánsdóttir, stud. phil. og Gunnsteinn Gunnarsson, stud. med. — Aðrir í ritnefnd: Aðalsteinn Davíðsson, stud. mag., Gísli Péturs- son, stud. phil., Magnús Jóhannsson, stud. med. og Ólafur Ragnarsson, stud. jur. — Setberg sf. prentaði. v_______________________________________________________________J Á

x

Nýja stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/608

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.