Dvöl - 06.01.1935, Side 7

Dvöl - 06.01.1935, Side 7
D V Ö L 7 6. ja«úat 1036 engan. s«ra hún unni, og engan, aera urini henni. Hún nam staðar. Henni kom allt í einu í hug, að í kvold var Jóns- messunótt eins og þá, er hún og Hreinn skildu fyrir mörgum ái’- um síðan. Hún litaðist í kring um sig. Allt var eins og áður, blámi fjallanna var hinn sami, hengjur og ísbreiður jöklanna þær sömú, draumblær dalanna sá sami og spegilgljáandi fjörðurinn var sem fyrr. Munurinn var aðeins sá, að þá brostu vonirnar, framtíðin og lífið við henni, en í kvöld var allt glatað. Hún var að vísu orðin fræg listakona, en hvers virði var listin henni eða frægðin, þegar ástin og h'fið var glatað, og öll framtíð hennar ekkert annað en djúp hryggð og sárar minningar? En hvað nóttin var kyrr og btíð, hvergi nokkurt hljóð, ekki svo mik- ið sem suð einnar flugu, sem rask- aði kyrrð hinnar þöglu hætur. Svo friðsæl hafði náttúran aldrei verið áður. Var þetta samhryggð guðs í hinum ómæianlega djúþa söknuði hennar? Eða var það tilviljun ein, að hún fengi að gráta vin sinn og aiinnast hans í slíkri dásamlegri kyrrð ? Heiða hrökk við. Fugl ílaug upp v>ð fætur hennar. Það var skógar- Oröstur, er flaug yfir á litla, laufg- ^ða grein og byrjaði að kvaka. Var hað ekki eins og hann væri að kVngja ástaróð til vorsins og lífs- ins? Qg brosti vorið ekki að ást litla fuglsins, og brosti þrösturinn ekki á móti? Það fór um hana titringur. — Þarna var goðspá örlaganna, sem hún hafði alltaf verið að leita að; en hún kom ekki fyrr en of seint, ekki fyrr en allt var glatað. Henni fanrist hún þekkja aftur sama þröstinn, hann söng á sömu laufg- uðu greininni og forðum, og hann söng sama sönginn og þá. Ó, að þetta skyldi ekki hafa gerzt einum degi fyrr! Eða að hún skyldi nokkurn tíma hafa verið í vafa um, hvorn hún ætti að velja, þeg- ar æskuást hennar var jafn hrein og fögur. Og jafnaðist nokkurt suðrænt seiðmagn á við bláu, draumlyndu augu æskuvinar henn- ar, eða á við ljósu lokkana hans, sem hrifu og heilluðu meira en nokkurt annað hár sem hún hafði séð ? En Hreinn lá einhvers staðar í blóði sínu og það þýddi ekki að tjást meira um það. En hún vildi minnast hans á staðnum, þar sem þau dvöldu nóttina forðum, þegar ástin óskipl og hreiri ómaði í hverj- um streng sálarinnar. Hún gekk þangað og settist á stein--------- en hvað var þetta? Rétt fyrir fram- an hana sat maður og grúfði and- litið í höndum sér. Hún reis á fæt- ur og ætlaði að fara, en þá leit maðurinn upp, og þau horfðust eitt andartak í augu. Hún var listakona, tilfinningarn- ar voru heitar og hamslausar, og í sarpa vetfangi hljóp hún i faðm

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.