Melkorka - 01.05.1955, Qupperneq 3
MELKORKA
TÍMARIT KVENNA
Ritstjórn:
Nanna Ólajsdóttir, ReykjahlíÖ 12, Reyhjavik, simi 3156 ■ Þóra Vigfúsdóttir, Þing/ioltsstrœti 27, Reykjavik, simi 5199
Útgefandi: Mál og menning
AVARP
frá Menningar- og friðarsamtökum íslenzkra kvenna
íslenzkar konur og mœður!
Sívaxancli framleiðsla kjarnorkuvopna hef-
ur að dómi stjórnmála- og vísindamanna
viðsvegar uni heim aukið óhugnanlega hœtt-
una á að til kjarnorku-styrjaIdar kunni að
draga milli stórþjóðanna, þarsem kjarnorku-
og vetnissprengjum yrði kastað á borgir og
bæi, jafnt sem þýðingarmiklar hernaðar-
stöðvar. Og enginn spyr um hvor aðili beri
sigur úr þeim hildarleik, heldur hvort
nokk.ru yrði bjargað, mönnum eða menn-
ingu.
íslenzka þjóðin verður að horfast i augu
við þá staðreynd að höfuðborg hennar meö
þriðjungi landsmanna er í fárra kilómetra
fjarlœgð frá einum stœrsta liernaðarflugyelli
heims, sem myncli að dómi hernaðarsérfrceð-
inga verða eitt af fyrstu skotmörkum i nýjum
styrjaldarátökum og Reykjavik því óhjá-
kvœmilega ofurseld dauðaregni kjarnork-
unnar, ef sprengju yrði kastað á Keflavikur-
flugvöll. Því er lif okkar allra sem Island
byggjum undir þvi komið að friðaröflin sigri
i heiminum, og hœgt verði að knýja stórveld-
in til aðsemja um deilumálin.
Heimsfriðarhreyfingin — en innan henn-
ar starfar m. a. Alþjóðasamband lýðrœðis-
sinnaðra kvenna með 130 milljónir kvenna i
samtökum sinum — ncer orðið með áhrifum
sinum til mikils meirihluta mannkyns, og
er það trú forystumanna hennarað með nógu
voldugum samtökum og mótmœlum megi
skapa svo sterkt almenningsálit móti styrj-
öldum að stórveldin verði knúin til þess að
taka upp samningaleiðina i stað þess að láta
vopnin tala.
Þvi er nú hafin i hverju landi jarðar og
einnigá íslandi undirskriftasöfnun aðávarpi
þvi sem Heimsfriðarráðið samþykkti í Vin
19. jan. 1955 þarsem þess er krafizt að birgð-
ir kja.rniorkuvopna i öllum löndum verði
eyðilagðar og framleiðsla þeirra stöðvuð.
Það eru einkum konurnar, mceður kyn-
slóðan na i öJlum löndum, sem beita sér með
eldmóði hugans fyrir undirskriftasöfnun
þessari, konurnar sem sáu heimili sin lögð i
rúst i siðustu styrjöld og syni og eiginmenn
MELKORKA
35