Melkorka - 01.05.1955, Blaðsíða 7
/ N
Hötundur þessarar greinar, Rannveig Tómas-
dóttir, er þjóðkunn af útvarpsþáttum sínum um
ferðalög meðal framandi þjóða og í fyrrahaust
kom út bók eftir hana: Fjarlœg lönd og framandi
þjóðir.
En Rannveig hefur ekki einungis ferðazt um
fjarlæg lönd heldur lagt land undir fót hér heima,
ferðast um fjöll og öræfi, og munu fáir kunnugri
íslandi en hún.
\_________________________________________/
í tilbreytingaríku hrauni, þöktu mosa, sem
er eins og grá, mjúk flauelsábreiða, en pur-
puralitir gígbarmanna gægjast upp úr hér og
þar. Þar er og Skálavatn með víðivöxnum
bökkum, en á nesjum og töngum hlær eyrar-
rósin á móti sólinni, en burnirótin kúrir í
hraundröngum sem teygja sig út í vatnið,
þar sem silunginn tekur uppi og himbrim-
inn syngur.
— Hafið þér riðið til Landmannalauga?
Þar er eitthvað fyrir augað, ljós líparítfjöll,
græn fjöll, blá fjöll, fjöll með öllum regn-
bogans litum, þar er gljásvart hrafntinnu-
hraun, grænar safamiklar grasbreiður með
tærum lækjum og sjóðlieitum laugum. Þar
er og Jökulgilið, en um það verður vart far-
ið nema á hestum vegna Jökulkvíslarinnar
sem um það Itlykkjast. Hvað sjáum við svo í
þessu gili? Hver getur lýst því? Við sjáum
sem sagt allt það sem við trúum ekki lengur
á, \áð sjáum öll tröllin úr tröllasögunum
sem við Iieyrðum er við vorum lítil, við sjá
um og alla álfana úr álfasögunum, undradís-
ir og furðuhallir, allt í leikandi litum og
dularfullum skuggum. Við sjáum svo margt
sem enginn kann að telja.
— Hafið þér dvalið efst á Arnarvatnshæð-
um, þar sem Jónas sagði:
„Á eiigum stað eg uni
eins vel og þessum mcr;
ískaldur Eiriksjökull
veit allt, sem talað er hér."
— Hafið þér staðið í fjörunni undir vold-
ugum hamrahöllum Hornbjargs og séð mið-
nætursólina roða öldur hins nyrzta hafs, en
þær falla upp að þessum hrikalegu strönd-
um sem mennirnir hafa flúið, en fuglinn
ríkir nú einn?
— Hafið þér sunnan af svörtum söndum
litið upp til konungs allra íslenzkra fjalla,
Öræfajökuls, þar sem hann rís í allri sinni
tign yfir hið volduga, hvíta ríki Vatnajök-
uls?
— Hafið þér komið í völundarhöllu þá er
Kerlingarfjöll nefnast, þar sem allir litir
regnbogans liafa mælt sér mót og frost og
funi heyja sína eilífðarbaráttu? En af þeim
fjöllum mun talið vera einna víðsýnast á
landi hér, því þaðan má sjá þvert yfir landið.
Eii það sem við sjáum af fjalla- og jökla-
tindum ætla ég ekki að reyna að binda í orð.
Eg ætla aðeins að endurtaka það sem Píus
páfi XI. segir í ágætri bók er liann skrifaði
um fjallgöngur, en liann var á sínurn tíma
einn þekktasti fjallgöngumaður álfunnar og
kleif meðal annars Mont Rosa fyrstur
manna árið 1889. Um það er hann og félagar
hans stóðu á tindinum segir liann svo: ,,Ég
ætla ekki að eyða einu einasta orði til að lýsa
tilfinningum okkar og því sem við sáum.
Minningin um sb'k augnablik talar til hins
útvalda sem þess hefir notið með óþrjótandi
mælsku, þar sem aftur á móti engin orð gætu
nægt eða jafnvel verið skiljanleg öðrum en
þeim sem notið hafa.“ Þau orð vildi ég gera
að mínum.
Svo að lokum þetta: Er þér þreytið göngu-
og fjallferðir, þá hafið í Iiuga einkunnarorð
ítalska Alpafélagsins, en þau hljóða svo: ,,Sá
sem gengur liægt gengur vel, sá sem gengur
vel kemst langt.“
Góða ferð!
MEEKORKA
39