Melkorka - 01.05.1955, Side 19
Það ei* ómögulegt að sjá fyrir allar afleiðingar
kjarnorkusprengjutilraunanna
Ur viÖtali viÖ Iréne Joliot-Curie
Þær „tilraunir" með atomsprengingar sem
ameríkumenn gerðu á Marshalleyjum með
þeim afleiðingum að japanskir fiskimenn
ásamt fiskinum, sem þeir veiddu, urðu fyrir
geislaverkunum, er hreint og beint glæpur
gagnvart öllu mannkyni. Þessar tilraunir
geta liaft ófyrirsjáanlegar og óútreiknanlegar
afleiðingar á fjarlægustu stöðum og komið í
ljós eftir mjög langan tíma. Þær geta orsakað
áður óþekkta sjúkdóma sem geta lagt undir
sig allan hnöttinn. Þær geta líka leyst úr læð-
ingi geislavirkt ryk, sem getur fallið til jarð-
ar hvar sem vera skal — hér hjá okkur — hjá
ameríkumönnum — það er ómögulegt að
segja hvar,
Þetta segir Iréne Joliot-Curie, hún talar
mjög hægt og íhugar vandlega. hverja setn-
ingu. Hún situr í skrifstofu Curie vísinda-
stofnunarinnar, sem hún veitir forstöðu, og
þar er allt í fyllstu reglu, ekkert lrljóð kemst
—
Sjöunda hvert barn sem fæðist
í Nagasaki er vanskapað
Sfðan kjarnorkusprengjunni var kastað á Nagasaki
1945 hafa fæðzt þar 30,150 börn. Þar a£ eru 4,282 á
einhvern hátt afbrigðileg. 1,046 börn hötðu afbrigði-
lega beinabyggingu eða taugakerfi, vöðva- cða húð-
sjúkdóma. 254 höfðu vanskapaðar varir eða tungu,
59 voru holgóma, 243 með vansköpuð innri líffæri,
429 með vansköpuð nef og eyru, 47 börn með van-
þroska heila, 25 börn með enga heila og 8 börn án
augna og augtialoka.
(Úr skýrslu frá 18. sept. 1954).
V_______________________ y
inu ut'an að. En að baki þessarar kyrrlátu
framkomu finn ég ólga reiði og sorg þessarar
miklu vísindakonu, sem ásamt maka sínum
hefur gert eina mestu uppgötvun okkar
tíma, og sér nú þá uppgötvun notaða þannig,
að í stað þess að verða mannfólkinu til fram-
dráttar, getur hún orðið liið mikla slys mann-
kyns.
Iréne Joliot-Curie er prófessor við Sor-
bonne háskólann í París og maður hennar,
Frédéric Joliot, er prófessor við Collége de
France. Þau fenau Nobelsverðlaunin saman.
Hún hefur fengið óteljandi virðingar- og
heiðursmerki — og sjálfsagt er engin kona
henni framar eins og er.
En við skulum ekki láta vísindakonuna
skyggja á konuna. Há og grönn, með breitt,
hvelft enni, augun skýr, næstum barnslegt
bros, sem bregður stöku sinnum fyrir, ó-
venjulegur persónuleiki orku og siðferðis-
styrks.
Hún heldur áfram: Hvorki mér né Frédé-
ric Joliot-Curie komu á óvart „hinar óvæntu
afleiðingar“ amerísku tilraunanna. Hinir
bandarísku starfsbræður okkar geta ekki af-
sakað sig með fáfræði eða undrun — það sem
við vitum, vita þeir einnig! Þegar eldfjallið
Krakatá gaus, héldust reykský frá gosinu
mörg ár í loftinu um alla jarðkringluna. Og
þá féll þetta ryk til jarðar á ýmsum, óvæntum
stöðum. Því getið þér getið yður til hverjar
afleiðingar geta orðið af kjarnorku- eða
vatnsefnissprengingu. Geislavirkt ryk getur
fallið hvar sem er á jörðinni — líka í Amer-
íku. Og það þarf ameríska þjóðin að vita. Sú
staðreynd að Bandaríkjamenn loka nokkrum
MELKORKA
51