Melkorka - 01.09.1960, Side 6
gleymt orðum Aristotelesar: Stjórnmál eru
skóli þar sem ekki er numið vegna þekking-
arinnar heldur vegna framkvæmdarinnar.
Bandarískur forustumaður í stjórnmálunr
orðaði þetta vandamál svo: Karlmenn virð-
ast gera sér ljósari grein fyrir pólitísku valdi
kvenna en þær gera sjálfar. Ef þessu væri
ekki svo varið, hefðu þær ekki erfiðað svo
lengi sem raun ber vitni í hinum pólitíska
víngarði fyrir svona iítinn afrakstur vinnu
sinnar.
Ástæðurnar til þessara uggvænlegu stað-
reynda er að leita utan stjórnmálalífsins —
í þjóðfélagsstöðu kvenna og efnahagsað-
stöðu þeirra.
Konur greiða ekki atkvæði sem stétt. Ef
Jjær gerðu það færi illa fyrir mörgu þing-
mannsefni af karlkyni. (Dæmi þess voru
bæjarstjórnarkosningar í Rvk. 1908). Þó að
svo virðist sem farið sé með konur eins og
stétt, t. d. á atvinnumarkaðinum, þá hafa
þær ekki hagsmunaeinkenni sem stétt, held-
ur styðja þá stétt sem þær eru úr. Því hefur
barátta frumherjanna í kvenréttindamálum
ekki haldið áfram á hinum pólitíska vett-
vangi. Oflun pólitískra réttinda var áhuga-
mál kvenna í öllum stéttum. Síðari endur-
bætur á högum kvenna snerta stéttir þjóð-
félagsins misjafnlega mikið og ekki virðist
vilji til að hefja sameiginlega baráttu.
Á einu sviði, lífeðlislegu og jDjóðfélags-
legu, hafa konur sameiginleg áhugamál. Þær
gefa líf og eru því harðari andstæðingar
hinnar vitfirringslegu eyðslu þess í stríði en
karlar. Því liafa margar konur jafnan verið
í forustusveitum friðarbaráttunnar.
Onnur ástæða áðurnefndrar Jrróunar eru
siðir og afstaða þjóðfélagsins til kvenna og
uppeldi og menntun kvenna kemur þeim
til að játa þessu eins og einhverri forsjón, en
46
MELKORKA