Vesturland - 01.12.1973, Síða 15
£uxw a/ks&FiKxxjw ssfteFswæiusxnxxn
15
KELVIN HUGHES
Ratsjár í öll skip
Myndstærð: 9, 12, eða 16 tommur
Langdragi: 36 eða 64 sjómílur
Færanlegur mælihringur
Ljóstölu fjarlægðarmælir
Afísingarbúnaður á loftnet
Gyrostilling: Réttvísandi mynd
„S”-Band radar 10 cm:
Betri mynd við verstu skilyrði.
R. Sigmundsson hf.
TRYGGVAGÖTU 8 SÍMAR 12238 OG 12260
BJÖRNSBÚB
ísafirði - Sími 3670
KJÖTVÖRUR
EFTIRRÉTTIR
KONFEKT í ÚRVALI
VINDLAKASSAR
ur Thyra Marie Nielsen (f. í
Skive 1. marz 1897) examen
pharm. Hann lauk prófi í
Gunnar Juul, lyfsali.
lyfjafræði í október 1916 í
Kaupmannahöfn.
Lyfsöluleyfi á ísafirði fékk
hann 28. september 1920, en
tók við rekstri lyf jabúðcU’inn-
ar 1. júlí 1920. Juul fékkst
líka við aðra umsýslu, og rak
meðal annars útveg í félagi
við O. Syre, norskan skip-
stjóra. Áttu þeir skipið
Ametu, sem fórst við Vest-
mannaeyjar, og töpuðu miklu
á þeim rekstri.
Juul var einkar vinsæll,
gamansamur og mikill veiði-
maður.
Thyra M. Juul fékk leyfi
til að reka lyfjabúðina áfram
um eins árs skeið eftir and-
lát manns síns.
Síðan seldi hún G. A. H.
Svane lyfsala og tók hann við
rekstrinum í október 1944.
5. kafli.
Hans Albert Hermansen
Svane er fæddur í Marstal á
Ærö 3. marz 1896. Foreldrar
hans voru J. C. Svane skip-
stjóri og útgerðarmaður í
Marstal og kona hans.
Hann var kvæntur Frida,
dóttur M. Hansens umboðs-
manns. Hún er nú látin. Þau
áttu tvö börn: Hans lækni í
Danmörku og Guðnýju, gifta
konu í Danmörku.
Svane lauk lyfjafræðiprófi
í apríl 1918. Var hann síðan
forstjóri fyrir lyfjabúðinni í
Marstal unz hann 9. septem-
ber 1925 fékk lyfsöluleyfi í
Stykkishólmi. Tók hann við
lyfjabúðinni þar 1. október
1925. En 15. október 1943
fékk hann lyfsöluleyfi á ísa-
firði, og tók við rekstri henn-
ar 8. október 1944. Hann
keypti fasteignina fyrir kr.
155.000,00 og auk þess lyfja-
birgðir.
Svane seldi Landsbanka ís-
lands Pólgötu 1, og lét bank-
inn flytja húsið að Mjallar-
götu, en foyggði bankabygg-
ingu á horni Pólgötu og Hafn-
arstrætis. Allar innréttingar,
sem tilheyrðu rekstri lyfja-
búðarinnar, voru þó undan-
þegnar söilu þessari.
Á árinu 1964 sagði H.A.H.
Svane upp lyfsöluleyfi sínu
og fluttist á næsta ári til
Marstal og býr hann þar í
Grænuhlíð.
6. kafli.
Ásgeir Ásgeirsson lyfja-
fræðingur fékk lyfsöliuleyfi á
Ásgeir Ásgeirsson, lyfsali.
ísafirði 10. nóvember 1964 og
tók hann við rekstri lyfjabúð-
arinnar 4. janúar 1965. Hann
leigði af Landsbankanum,
eins og Svane hafði gert eftir
að hann seldi, húsnæði fyrir
lyfjabúðina.
Hann rak lyfjabúðina þang-
að til hann andaðist 29. marz
á þessu ári. Ásgeir var Vest-
firðingur að ætt og uppruna,
fæddur á Sólfoakka við Ön-
undarfjörð 27. febrúar 1927,
og dó því mjög um aldur
fram. Ásgeir lyfsali var hvers
manns hugljúfi og mikill
mannskaði að honum. Hann
var bæjarfulltrúi fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn frá 1967 til
dauðadags, og lagði flokki sín-
um mikið lið á margvíslegan
hátt, og vann bæjarfélaginu á
mörgum sviðum. Kvæntur var
hann Guðrúnu F. Magnús-
dóttur og áttu þau tvö börn,
Ingibjörgu Svövu og Ásgeir.
7. kafli.
Núverandi lyfsali, Hrafn-
kell Stefánsson, fékk leyfis-
bréf 21. júní 1973 og hóf
rekstur lyfjabúðarinnar 1. ág.
síðastliðinn.
Hrafnkell Stefánsson, lyfsali.
Þau nýmæli fylgdu leyfinu,
að lyfsala var gert að reka
lyfjaútibú í Bolungarvík og
Súðavík, en Ásgeiri Ásgeirs-
syni hafði með bréfi Heil-
brigðis- og tryggingamála-
ráðuneytisins dags. 16. marz
1972, verið heimilað að reka
útsölu lyf ja í Bolungarvík um
óákveðinn tíma og þangað til
öðruvísi yrði ákveðið.
Hrankell hefur undanfar-
in ár starfað hjá ríkisspítöl-
unum og haft yfirumsjón með
lyfjabúrsrekstri þeirra. Hefur
starfsaðstaða og vettvangur
einkum verið á Landsspítala,
en einnig á Kleppsspítala og
Vífilsstöðum.
Jafnhhða þessum störfum
fékkst hann við rannsóknir á
ávana- og fíknilyfjum, og
réttarfræðilegar rannsóknir á
Rannsóknarstofu í lyfjafræði.
Kona hans er Guðbjörg
Jónsdóttir og eiga þau sex
börn.
Jóhannes Sigfússon, síðar apótekari, sem nemi við
ísafjarðarapótek.