Búnaðarrit - 01.01.1969, Blaðsíða 30
20
BÚNAÐARRIT
Einnig var liann ritstjóri Búfræðingsins þau ár, sem
Hólamenn sáu um útgáfu lians, og skrifaði margar grein-
ar um búfræðimál í blöð og tímarit.
Eftir að ég fluttist hingað suður, gafst mér færi á að
endumýja kynni mín og lioll samskipti við þau góðu
lijón, Kristján og konu hans. Hvergi kom ég oftar gestur
en á lieimili þeirra við Kleppsveg 44. Stundum veittu
þau mér og konu minni þá ánægju að koma lil okkar.
Með þeim átti ég jafnan góðar stundir.
Vel var mér Ijóst, að Kristján gekk ekki heill til
skógar. Því undraðist ég, hve liann var ferskur í hugsun
og svifléttur í hreyfingum eins og ungur maður. Þótt
margt bæri á góma í viðræðum okkar og áhugamál lians
væru margs konar, þá bar hann mest fyrir hrjósti ís-
lenzk landbúnaðarmál. Hann var gjörkunnugur liögum
bænda um allt land og hafði glöggan skilning á því, livar
skórinn kreppti þar mest að, og jafnframt jákvæður að
leita ráða til úrbóta.
Heimili þeirra hjóna var orðið fámennt. Síðustu miss-
irin voru börn þeirra öll flogin úr hreiðrinu og höfðu
stofnað eigið lxeimili.
Verða börn þeirra liér talin eftir aldursröð:
1. Ingólfur, verzlunarstjóri hjá vélaverzluninni Heklu
hf., kvæntur Hildi Eyjólfsdóttur, bónda, Krossnesi í
Strandasýslu.
2. Karitas, hjúkrunarkona, gift Kára lækni Sigurbergs-
syni, vitavarðar á Garðskaga.
3. Karl, kennari, kvæntur Elinhorgu Isaksdóttur,
skólastjóra Jónssonar.
4. Guðbjörg, gift Benjamín Magnússyni, múrarameist-
ara, en Benjamín er við arkitektsnám í París. Guð-
björg stundar þar einnig háskólanám.
Fósturdóttir þeirra hjóna er Freyja Sigurðardóttir, gift
Einari Sigurðssyni bónda á Gljiifri í ölfusi.
* * *