Búnaðarrit - 01.01.1969, Page 203
BÚNAÐARÞING
193
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt
var með 25 samliljóða atkvæðum:
Bvinaðarþing beinir þeirri áskorun til stjórna Búnaðar-
félags Islands og Stéttarsambands bænda að taka til
rækilegrar athugunar, á livern bátt rnegi áhrifaríkast
mólmæla ýmsum ummælum og kveða niður áróður, sem
viðliafður hefur verið og er enn gegn íslenzknm land-
búnaði. Sem dæmi má nefna órökstuddar fullyrðingar
um kostnað þjóðfélagsins af landbúnaðinum og áróður
gegn neyzlu landbúnaðarafurða.
Því leggur þingið álierzlu á, að ráðinn verði sérstakur
blaðafulltrúi til Búnaðarfélags Islands og Stéttarsam-
bands bænda, er m. a. liafi þetta verkefni, og vinni jafn-
framt að meiri og fjölþættari markaðsleit fyrir land-
búnaðarvörur, eftir |iví sem ástæður leyfa.
GreinargerS:
Á undanförnum árum hefur bændastéttin þráfabllega
orðið fyrir ómaklegum árásum, þar sem slegið liefur
verið fram órökstuddum fullyrðingum þess efnis, að
landbúnaðurinn valdi öllu öðru fremur þeim efnaliags-
örðugleikum og dýrtíð, sem nú er við að stríða í þjóð-
félaginu, og sé hemill á eðlilegan liagvöxt þjóðarbúskap-
arins.
Þessar fullyrðingar bafa ekki bvað sízt verið viðbafð-
ar og endurteknar af áhrifamönnum á sviði efnaliags- og
annarra þjóðmála og til þess ætlaðar að telja fólki trú
um það, að sú landbúnaðarstefna, sem rekin liefur verið
á undanförnum árum, sé alröng og eigi að verulegu leyti
sök á því efnaliagsástandi, sem skapazt befur bjá þjóð-
inni.
Einnig liefur verið rekinn áróður gegn neyzlu vissra
landbúnaðarafurða s. s. mjólkur og smjörs. Því er haldið
fram, að of mikil neyzla á þessum fæðutegundum valdi
lijarta- og æðasjúkdómum. Hér er um áróður að ræða,
13