Búnaðarrit - 01.01.1969, Blaðsíða 221
BÚNAÐARÞING
211
tekin upp verðskráning í heildsölu til innlendra aðila,
sem kaupa ull og gærur til iðnaðar. Því beinir þingið
þeirri áskorun til landbúnaðarráðherra að taka þetta
mál til gaumgæfilegrar athugunar í samráði við Búnaðar-
félag Islands og lielztu söluaðila, og hlutast til um nauð-
synlegar lagabreytingar í þessu skyni, ef viðunandi
form fæst á framkvæmd verksins og því fylgi ekki
óhóflegur kostnaður.
GreinargerS:
Á undanförnum árum liafa gæði þeirrar ullar, sem kom-
ið hefur til sölumeðferðar, minnkað mikið, þannig að nú
fara aðeins 4—5% af ullinni í I. flokk í stað 15% fyrir
um 5 árum. Versnandi árferði getur valdið nokkru um
þessa afturför, en lágt verð á ullinni mun eiga simi þátt í
þessari öfugþróun. Þegar ullarverðið er eins lágt og
verið liefur undanfarin ár, telja margir bændur ekki
svara kostnaði að smala fé til rúnings. Sé fénu sleppt
á fjall í ullu og ekki rúið fyrr en að haustinu, er ullin
orðin mjög slæm, bæði harðflókin og full af mori.
Úrgangsull, sem fer í V. flokk hjá þvottastöðvum S.I.S.,
fer stöðugt vaxandi, og sú ull er nú nær óseljanleg úr
landi síðan 1965. Magnið af V. flokks ull var 22% af
allri metinni ull í Hveragerði frá árinu 1967, og 28,5%
af ull ársins 1968 voru komin í V. flokk þar um sl. ára-
mót. Við ullarþvottastöðina á Akureyri hafa yfir 16%
af allri ull farið í V. flokk síðan 1966.
Á undanförnum árum hefur opnazt markaður erlendis
fyrir ýmiss konar vörur úr íslenzkri ull, sem m. a. bygg-
ist á því, að hráefnið, sem þessar vörur eru unnar úr,
sé nógu gott og uppfylli vissar lágmarkskröfur. Þessi
markaður getur verið í hættu, ef ullargæðin fara sí-
versnandi.
Því er full þörf á að leita þeirra úrræða, sem hugsan-
leg eru, til þess að ná upp ullargæðunum. Verður það
tæpast gert á annan hátt en með því að taka upp gæða-