Búnaðarrit - 01.01.1969, Blaðsíða 33
SKÝRSLA BÚNAÐARMÁLASTJÓRA
23
á starfsliði félagsins á árinu, og verður þeirra getið í eftir-
farandi skýrslu. 1 skýrslum starfsmauna, seni birtar eru
sérstaklega liér á eftir, kemur nánar fram verkaskipt-
ing þeirra, og að livaða verkefnum þeir unnu sérstaklega
á árinu.
1. Halldór Pálsson, búnaðarmálastjóri. Búnaðarmála-
stjóri er framkvæmdastjóri félagsins, stjórnar öllum
starfsgreinum þess í umboði félagsstjórnar og situr
stjómarfundi. Hann er ritstjóri Búnaðarritsins.
2. Gunnar Árnason, gjaldkeri. Hann gegnir einnig skrif-
stofustjórastarfi ásamt búnaðarmálastjóra.
3. Björn Bjarnarson, jarðræktarráðunautur.
4. Jónas Jónsson, jarðræktarráðunautur.
5. Agnar GuSnason, fóðurræktarráðunautur. Hann var
aðalframkvæmdastjóri Landbúnaðarsýningarinnar ’68
og einnig ritstjóri Handbókar bænda.
6. ÓIi Valur Hansson, garðræktarráðunautur. — Hann
var meðritstjóri Freys árið 1968.
7. Axel V. Magnússon, ylræktarráðunautur.
8. Ólafur E. Stefánsson, nautgriparæktarráðunautur.
9. Jóhannes Eiríksson, nautgriparæktarráðunautur.
10. Árni G. Pétursson, sauðfjárræktarráðunautur.
11. Sveinn Hallgrímsson, sauðfjárræktarráðunautur.
12. Gunnar Bjarnason, alifugla- og svínaræktarráðunaut-
ur.
13. Þorkcll Bjarnason, hrossaræktarráðunautur.
14. Haraldur Arnason, verkfæraráðunautur. — Hann er
einnig framkvæmdastjóri Yélasjóðs og í stjórn bans
ásamt þeim Ágústi Þorvaldssyni, alþingismanni og
bónda á Brúnastöðum og Steinþóri Gestssyni, alþ.m.
og bónda á Hæli, sem er formaður stjórnarinnar.
15. Magnús Sigsteinsson, bygginga- og biitækniráðxmaut-
ur frá 1. október. Magnús brautskráðist sem stúd-
ent frá Menntaskólanuin í Reykjavík 1964. Hóf þá
búfræðinám við Oksnevad bændaskóla í Noregi og
tók búfræðipróf þaðan 1965. Innritaðist þá um liaust-