Búnaðarrit - 01.01.1969, Side 42
32
BÚNABARRIT
höfðu boðið Búnaðarfélagi íslands mannvirki og aðstöðu
til kaups með góðum skilmálum. Hins vegar lá fyrir
tilboð forsvarsmanna Kynbótastöðvarinnar í Laugardæl-
um um ókeypis afnotaréttindi í 10 ár á aðstöðu fyrir
starfsemina í Laugardælum, yrði liún staðsett þar. Stjórn
Búnaðarfélags Islands taldi eftir atvikum eðlilegra að
kaupa mannvirki þegar í uppliafi og spurðist fyrir um,
hvort og þá með hvaða kjörurn mannvirki væru til sölu
í Laugardælum. Forsvarsmenn stöðvarinnar óskuðu eftir
fresti til atliugunar fram yfir Landbúnaðarsýninguna, sem
halda átti í ágúst í Reykjavík.
Tilboð barst Búnaðarfélagi Islands, þar sem hoðið var
til viðbótar fyrra tilboði að selja Búnaðarfélagi Islands
mannvirki og aðstöðu í Laugardælum samkvæmt mati.
ICynbótanefndin skilaði endurskoðuðum áætlunum 31.
okt., og eru lielztu niðurstöður þær, að reksturskostnaður
við sædda kú yrði kr. 84.00, ef 33.000 kýr yrðu sæddar
árlega, sem er sá fjöldi, sem undirbúningsnefnd liafði
gert ráð fyrir, að fljótt yrði náð. Hins vegar yrði sæð-
ingarkostnaður um kr. 96.00 á kú, ef aðeins yrðu sæddar
20.000 kýr árlega. Stofnkostnaður yrði svipaður, livort
sem fleiri eða færri kýr yrðu sæddar.
Bréf dagsett 13. ágúst barst frá yfirdýralækni, þar sem
hann mælti með, að djúpfrystingarstöðinni yrði valinn
staður að Hvanneyri fremur en Laugardælum, vegna þess
að enn sem komið er hefur garnaveiki ekki fundizt í
nautgripum í Borgarfjarðarsýslu, en í Árnessýslu liafa
nautgripir sýkzt á nokkrum bæjum. Því er meiri liætta
á ferðinni, ef stöðin er staðsett í Laugardælum, að þessu
leyti. Auk þess væri starfrækt afkvæmarannsóknastöð í
Laugardælum, en þeirri starfsemi er samfara flutningur
á gripum frá ýmsum bæjurn á suðurlandsundirlendinu
að Laugardælum. Fylgir því nokkur áhætta, er varðar
smitsjúkdóma.
I október var Ólafi E. Stefánssyni formanni kynbóta-
nefndar falið að panta nokkur nauðsynlegustu tæki fyrir