Búnaðarrit - 01.01.1969, Side 54
44
BÚNAÐARRIT
Einar Otti Cuðmundsson, dýralækninganám, Þýzkalandi — 7.000,-
Þorsteinn Lindal, dýralækninganám, Noregi...........— 7.000.-
Bjarni E. Guðleifsson, jarðræktarnám, Noregi........— 7.000.-
Styrkurinn til fyrsttalda nemandans á skrá þessari er fyrir námsárið
1967—’68, en hinna fyrir 1968—’69.
Styrkir til náms- og kynnisferða starfsmanna
landbúnaðarins
Eftirtaldir starfsmenn landbúnaðarins hlutu styrk á ár-
inu 1968 af fjárhæð þeirri, sem Búnaðarþing lagði til
náms- og kynnisferða starfsmanna landbúnaðarins:
Sigurmundur Guðbjömsson, ráðunautur kr. 45.742.00
og Diðrik Jóhannsson, forstöðumaður Búfjárræktarstöðv-
ar Vesturlands kr. 45.786.50 og Jóhannes Sigvaldason,
forstjóri Rannsóknarstofu Ræktunarfélags Norðurlands
kr. 32.366.00. Tveim þeim fyrstnefndu liafði verið heitið
styrk á árinu 1967, en gátu þá ekki notað liann. Þeir
fóru báðir til Noregs 1968 til að kynna sér tækni við
djúpfrystingu nautasæðis. Jóhannes Sigvaldason fór til
Bretlandseyja til að kynna sér jarðvegsefnagreiningar og
jarðræktartilraunir þar.
Styrkur úr minningarsjóði hjónanna Sigurðar Sigurðs-
sonar, búnaðarmálastjóra og Þóru Sigurðardóttur
Sumarið 1965 var Magnúsi Jónssyni veittur styrkur úr
sjóðnum til framhaldsnáms í búfræði við búnaðarhá-
skólann í Vollebekk. Fékk liann styrk úr sjóðnum 1968
kr. 2800.00 í síðasta sinn, enda lauk liann námi á árinu.
Verðlaunasjóður bændaskólanna
Árið 1968 hlutu þessir nemendur, er brautskráðust frá
bændaskólunum, verðlaun:
Jón V. Jónmundsson, Hrappsstöðum, Svarfaðardal,
brautskráður frá Hólum.
Kristján B. Jónsson, Neðradal, Biskupstungum, braut-
skráður frá Hvanneyri.