Búnaðarrit - 01.01.1969, Blaðsíða 102
92
BUNAÐARRIT
Bústofn og framkvæmdir í Laugardœlum. 1 árslok voru
á fóðrum í Laugardælum 49 búskýr, 51 í afkvæmarann-
sókn að 1. og 2. kálfi, 30 kvígur á 2. ári, 32 kvígukálfar,
8 holdablendingar á 1. og 2. ári og 30 naut á Kynbóta-
stöðinni í Þorleifskoti, alls 200 nautgripir. Svínaeign var
þá 12 gyltur, 1 göltur og 128 grísir. Hænsni voru 500 og
hross 41. Ungað var út um 15 þús. hænuungum á árinu
og þeir seldir víðs vegar um Suðurland ýmist nýfæddir
eða 2ja mánaða. Nokkur stór tæki bættust við búvéla-
eign búsins. Lögð var 600 m vatnsleiðsla og um leið bætt
aðstaða til brunavarna á staðnum. Sáð var grasfræi í 4.4
ha og fóðurkáli í 2.5 ba, og 6 ha voru búnir undir rækt-
un.
Tilraunir. Rannsóknastofnun landbúnaðarins lét end-
urtaka í Laugardælum tilraun með grasmjöl fyrir mjólk-
urkýr, og stóð hún yfir frá 8. marz til 6. júní. Var liún
gerð á 20 kúm í tveimur jafnstórum flokkum. Þurrliey
og votliey, sem gefið var að vild í báðum flokkum, var
vegið, en munur gerður á samsetningu kjarnfóðurs. Fékk
samanburðarflokkurinn M.R. fóðurblöndu, en liún hafði
verið gefin mjólkurkúm í Laugardælum það, sem af
var vetri. í blöndunni, sem tilraunaflokkurinn fékk, var
liins vegar dregið úr maís og byggfóðri, en 23% af gras-
mjöli sett í blönduna í staðinn. Ekki hefur enn verið
lagt stærðfræðilegt mat á niðurstöður tilraunarinnar, en
úrvinnsla úr gögnum sýnir, að samanburðarflokkurinn
mjólkaði um 6% meira en grasmjölsflokkurinn.
Holdanautgriparœkt. Eins og getið var í síðustu starfs-
skýrslu, lá þá enn ekki ljóst fyrir, hvort aðstaða fengist
til frambúðar á Bessastöðum til umsjár með ræktun
lioldanauta þeirra, sem flutt voru þangað í því skyni í
ársbyrjun 1966. Ríkisbúskapur á Bessastöðum var lagð-
ur niður 1. maí 1968, og var ekki lengur mn að ræða að
fá þá aðstöðu þar til ræktunarinnar, sem uppliaflega
var ráð fyrir gert. Landbiínaðarráðherra leitaði þá eftir
aðstöðu á Hvanneyri fyrir holdanautabúið og fól okkur