Búnaðarrit - 01.01.1969, Blaðsíða 103
SKYRSLU R STARFSMANNA
93
Páli A. Pálssyni, yfirdýralækni, og Sæmnndi FriSriks-
syni, framkvæmdastjóra, að kynna okkur aðstöðu þar.
Fórum við þangað 10. apríl og ræddum við Guðmund
Jónsson, skólastjóra, og Guðmund Jóhannesson, ráðs-
mann, um málið. 1 framhaldi af því boðaði landbúnaðar-
ráðherra og ráðuneytisstjóri til fundar með okkur um
málið 22. apríl ásamt búnaðarmálastjóra, skólastjóran-
um á Hvanneyri og fulltrúa forsætisráðuneytisins. Var
þá ákveðið að færa holdanautabúið að Hvanneyri, og
yrði rekstur þess á vegum Hvanneyrarbúsins, en ræktun,
umsjá og eftirlit á vegum Búnaðarfélags Islands. Yfir-
dýralæknir og framkvæmdastjóri Sauðfjárveikivarna
skýrðu frá, bvaða einangrun yrði gert ráð fyrir á staðn-
um varðandi flutning á nautgripum og nautasæði.
Um vorið voru á Bessastöðum 18 kýr, 6 naut (1 full-
orðið, 1 tveggja vetra og 4 veturgömul), 6 geldingar
tveggja vetra, 6 kvígur tveggja vetra og 8 veturgamlar,
alls 44 gripir auk kálfa, sem fæddust um vorið og sumar-
ið. Geldneytin voru flutt að Hvanneyri 19. júní nema
elzta nautið, Punktur. Sá galli var á því, að undan því
fæddust nokkrir hyrndir kálfar, og var því fráleitt að
nota það áfram. Vel þótti við eiga, að sýna nautið á
landbúnaðarsýningunni, og var það liaft í vörzlu á Vífils-
stöðum til þess tíma, en síðan flutt að Gunnarsholti, en
þaðan var það fengið. Kýrnar og kálfarnir voru flutt að
Hvanneyri í júlímánuði nema 4 kýr, er slátrað var, og
nautkálfur undan einni, er sýndur var á landbúnaðarsýn-
ingunni og seldur að Laxigardælum í lok liennar. Girð-
ingar bafa verið settar upp á Hvanneyri fyrir gripina og
bluti af fjósi innréttaður fyrir þá. Hins vegar bafa mæl-
ingar á gripum enn ekki átt sér stað, þar sem fyrst þarf
að gera björðina mannvana.
Reykjavík, 5. febrúar 1969,
Ólafur E. Stefánsson.