Búnaðarrit - 01.01.1948, Síða 66
60
BÚNAÐARRIT
orðið nokkur breyting. Landbúnaðurinn fær nú miklu
fremur að njóta sannmælis, en var fyrir tveimur til
þremur árum síðan. Þær rægitungur, sem reyndu að
gera landbúnaðinn tortryggilegan og koma einhvers
konar ölmusustimpli á bændur hafa þagnað að mestu
leyti. Skilningur ahnennings hefur vaxið á mikilvægi
landbúnaðarins og fólk kann betri skil á starfi og
striti sveitafólksins. Þessa breytingu á viðhorfi ann-
arra stétta til landbúnaðarins, má vafalaust að all-
miklu leyti rekja til sýningarinnar.
Af því, sem hér hefur verið fram tekið, verð ég því
að telja, að sá árangur, sem stefnt var að, með því
að halda sýninguna, hafi náðst að verulegu leyti.
Jafnframt vona ég, að landbúnaðarsýningin hafi orð-
ið til þess að sveitafóllcið hafi fengið aukna trú á
sjálft sig og störf sín og hafi fyllri sannfæring en
áður fyrir því, að það vinni einhver allra þjóðnýt-
ustu störf í þágu lands og þjóðar.
Næsta landbúnaðarsýning.
Flestum mun finnast, að of snemmt sé að ræða það
mál nú, en þó er ekki víst að svo sé.
Þeir, sem stóðu fyrir Landbúnaðarsýningunni 1947,
voru allir óvanir slíku, minnsta kosti á þann mæli-
kvarða, sem stofnað var til sýningarinnar. Hér er því
um brautryðjendastarf að ræða að langmestu leyti.
Búsáhaldasýningin 1921 var svo löngu um garð geng-
in, og aðstæður allar svo breyttar, að lítið var hægt
að styðjast við þá reynslu, sem þar fékkst, það varð
því að byggja allt frá grunni, nema helzt að því leyti,
er snerti garðyrkjudeildina og heimilisiðnaðardeild,
en myndarlegar sýningar hafa ol'tar en einu sinni ver-
ið haldnar í þeim greinum. Það var þess vegna ekki
nema eðlilegt að ýmsu væri ábótavant um sýningar-
tækni, eins og hún nú gerist með þeim þjóðum, sem