Búnaðarrit - 01.01.1948, Síða 111
BÚNAÐARRIT
105
ur eru til þess, að innan fárra ára verði það af henni,
sem út verður flutt, vélþvegið og flokkað eftir gæðum,
eyddi ég ekki miklum tíma í að kynna mér, hvernig
kaupendum líkaði við verkun hennar og flokkun. En
víða er nú eftirspurn eftir íslenzkri ull, eins og ull yfir-
leitt, því í mörgum löndum er enn mikill hörgull á
ullarvarningi. Verðlagið fer auðvitað mikið eftir kaup-
getunni, en alls staðar er ull nú dýr miðað við annað
verðlag, nema á Islandi, vegna hinnar gifurlegu dýr-
líðar hér.
l>. Gærur.
Islenzkar gærur eru nú auðseld vara í ýmsum lönd-
um, og hefur verðlag á þeim farið hækkandi síðustu
árin. íslenzku gærurnar, eins og yfirleitt gærur af hinu
Norður-Evrópiska stuttrófufé, eru verðmætara hrá-
efni en gærur af flestum öðruxn fjárkynjum í lieimi,
sbr. skýrslu mína hér að framan. Skinnin sjálf afulluð
og sútuð eru yfirleitt ágæt í ýmsan skinnaiðnað, en
auk þess má nota nokkuð af íslenzkum gærum til loð-
feldafranxleiðslu með góðum árangri, þótt þær jafnist
bvergi nærri á við finnskar gærur af því fé, sem þar
befur sérstaklega verið ræktað vegna gærunnar. ís-
lenzku gærurixar hafa aldrei verið flokkaðar eftir gæð-
iim, lit, stærð eða noltkruni öðrum eiginleika, heldur
bafa þær verið saltaðar og seldar eins og þær koma
íyrir upp og ofan. Ég tel vafasaixit, livort xxokkur ís-
'endingur liafi raunverulega þekking á því hvaða eig-
inleikar gærunnar auka verðgildi hennar, til hinna
ýmsu nota, og í hverjxx gallarnir eru fólgnir. Ég tel
miklar líkur til þess að auka megi verðgildi gæranna
og auðvelda sölu á þeim, ixxeð því að flokka þær ræki-
lega eftir gæðum við slátrun. Undanfarna tvo áratugi
befur nokkuð af íslenzku gærunum verið unnið eða
i'álfunnið innanlands. S. í. S. hefur árlega látið afulla
stærri eða minni slatta af gærum á Akureyri og suxn-