Búnaðarrit - 01.01.1948, Síða 242
236
BÚNAÐARRIT
vel vaxnir og kynfestulegir. Smári Samuels á Hrafna-
björgum er tápmikill hrútur, vænn og holdgóður.
Goði Hafliða i Ögri er einnig vænleika- og dugnaðar-
hrútur.
Súðavikiirhreppur. Þar var sýning haldin á Eyri
í Seyðisfirði og var liún vel sótt úr inn-hluta sveit-
arinnar. Þar voru sýndir 13 hrútar frá Eyri, en þar
er eitt af stærstu fjárbúum á Vestfjörðum. Þrír
þeirra hlutu I. verðlaun, Óli, 7 vetra, Kópur, sonur
hans, og Bjartur sonur Hnalls. Kópur mun hafa verið
þeirra beztur, en Óli mun hafa verið framúrskarandi
hörku- og dugnaðarskepna. Þessir lirútar eru frem-
ur smávaxnir, en mjög jíungir eftir stærð. Þeir eru
liarðgerðir, holdfastir, vel byggðir með mikla kyn-
iestu. Féð á Eyri er eftir hrútunum að dæma kosta-
mikið útibeitarfé.
Hnallur Áka Eggertssonar í Súðavík er gríðar-
vænn hrútur velurgamall, vóg 87 kg. Hnallur er son-
ur Spaks á Kleifum, en liann er út af hrút frá Jóni
H. Þorbergssyni á Laxamýri. Hnallur er ágætlega
holdfylltur, en hefur aðeins of granna snoppu og fætur.
Spakur Guðmundar á Kleifum, faðir Hnalls, er jöt-
unn-vænn, en hefur dálítið sigið bak.
Eijrarhreppur. Þar var fásótt sýning inn í Skutuls-
fjarðarbotninum. Sýndir voru 9 hrútar. Tveir þeirra
hlutu I. verðlaun, Jökull Finnboga í Kirkjubæ og
Ófeigur Hjartar í Fagrahvammi. Þeir eru báðir vel
gerðir, en eigi metfé.
í þessum hreppum Norður-ísafjarðarsýslu, sem ég
fór um í þetta sinn, er stundaður myndarlegur sauð-
fjárbúskapur, sem þarf að eiga sér framtíð. Þetta eru
landkostasveitir, fagrar og búsældarlegar, einkum til
sauðfjárræktar. Bændurnir búa þarna yfirleitt vel,
fénaður kostamikill og afurðasæll og nægur markaður
a ísafirði fyrir allar afurðirnar. En ræktun þarf víða