Búnaðarrit - 01.01.1997, Side 14
BÚNAÐARRIT 1997
skipar fimm menn í stjórn sjóðsins, þar af
tvo eftir tilnefningu Bændasamtaka íslands.
Arð af eigin fé, umfram verðtryggingu
höfuðstóls, skal nota til að lækka útlánavexti
Lánasjóðsins. Ríkisábyrgð er á skuldbind-
ingum Lánasjóðs landbúnaðarins ef eignir
og tekjur sjóðsins standa ekki undir skuld-
bindingum hans. Með lögunum lækkaði
einnig gjald til Stofnlánadeildar landbún-
aðarins um 60% þegar hinn 1. júní 1997.
Alls lækkuðu því tekjur Lánasjóðsins (áður
Stofnlánadeildar) af sjóðagjöldum um ná-
lega 64% vegna lagasetningar á árinu.
Alþingi breytti lögum um Lífeyrissjóð
bænda á haustþingi 1997, með lögum nr.
122/1997, og tók breytingin gildi 1. janúar
1998. Tekin var upp nokkru nánari skil-
greining á sjóðfélögum og starfsheitið bóndi
afmarkað ákveðnar en verið hefur. Bóndi er
hver sá aðili að félagsbúi, einkahlutafélagi
eða öðru löglegu búrekstrarformi sem
stundar búskap á lögbýli þar sem hann á
lögheimili og búrekstur fellur undir sömu
atvinnugreinar og skylt er að greiða
búnaðargjald af. Iðgjaldsstofninn verður
reiknað endurgjald sjóðfélaga við búrekstur
og skal iðgjaldsgreiðsla nema 4% af
stofninum en jafnframt skulu bændur greiða
mótframlag, 6%, ef ekki er samið um
greiðslu þess úr ríkissjóði. Áður var fram-
leiðendaverðið gjaldstofn, en þak sett á
árlega innheimtu. Innheimtumenn ríkis-
sjóðs munu innheimta iðgjaldið hjá sjóð-
félögum og verður innheimt uppígreiðsla af
beingreiðslum eða með búnaðargjaldi.
Uppgjör fer síðan fram með endanlegri
álagningu árið eftir, sem skattstjóri annast.
Á vorþingi Alþingis 1997 voru einnig
samþykkt ný lög um eldi og heilbrigði
sláturdýra, slátrun, vinnslu, heilbrigðisskoð-
un og gæðamat á sláturdýrum, nr. 96/1997.
Lögin, sem öðluðust gildi 1. júlí 1997,
leystu af hólmi lög um meðferð, skoðun og
mat á sláturafurðum, sem að stofni til voru
frá árinu 1966. I nýju lögunum eru
nákvæmari fyrirmæli um umfang löggild-
ingar landbúnaðarráðuneytis, en nú skal
sækja um löggildingu aðstöðu til slátrunar,
kælingar, frystingar, vinnslu og geymslu
sláturafurða. Einnig eru ákvæði um eftirlit
með sláturdýrum heima á lögbýlum og um
innra eftirlit sláturhúsa og kjötvinnslu-
stöðva. Ákvæði um gæðamat sláturafurða
eru um margt hliðstæð eldra fyrirkomulagi.
Bæði heilbrigðiseftirlit og yfirkjötmat verður
áfram á vegum landbúnaðarráðuneytis og
áfram verður innheimt bæði eftirlitsgjald og
matsgjald af sláturleyfishöfum.
Tafla 1. Hlutfallsleg skipting tekna af búnaðargjaldi
Búnaðarsjóður B( Bún.sb. Búgr.fél Bjargr.sj. Lánasj. landbún. Framl.ráð landbún. Alls
Nautgripaafurðir 0,325 0,500 0,100 0,300 1,150 0,275 2,650
Sauðfjárafurðir 0,325 0,500 0,100 0,300 1,150 0,275 2,650
Hrossaafurðir 0,325 0,500 0,550 0,200 0,800 0,275 2,650
Svínaafurðir 0,125 0,250 0,900 0,300 0,800 0,275 2,650
Alifuglakjöt 0,125 0,250 0,200 1,000 0,800 0,275 2,650
Egg 0,125 0,250 0,900 0,300 0,800 0,275 2,650
Kartöflur, gulrófur 0,325 0,500 0,450 0,300 0,800 0,275 2,650
Annað grænm. og blóm 0,325 0,500 0,750 0,300 0,800 0,275 2,950
Grávara 0,325 0,500 0,450 0,300 0,800 0,275 2,650
Æðardúnn 0,325 0,500 0,450 0,300 0,800 0,275 2,650
Skógarafurðir 0,325 0,500 0,450 0,300 0,800 0,275 2,650
12