Búnaðarrit - 01.01.1997, Page 41
BÚNAÐARRIT 1997
I töflu 22 er sýnd afkoma sauðfjárbúa
1993-1997 samkvæmt búreikningum. Rétt
er að taka fram að ekki er um að ræða sömu
bú öll árin, heldur eru hér niðurstöður úr
uppgjöri búreikninga eins og Hagþjónustan
birtir þær árlega. Árið 1993 fengu sauð-
fjárbændur greiðslur fyrir niðurfærslu á
greiðslumarki og námu þær að meðaltali kr.
260 þús. á bú sem komu til uppgjörs. I kjöl-
far breytinga á stuðningi við sauðfjárræktina
og mikils samdráttar í framleiðslu hafa sauð-
fjárbú gengið í gegnum miklar þrengingar á
síðustu árum. Þegar skoðað er uppgjör
þeirra búa sem komu til uppgjörs bæði árið
1995 og 1996 kemur þó í ljós að hagnaður
fyrir laun eigenda jókst og virðist mega rekja
það til hækkaðs gæruverðs, hækkaðs verðs
fyrir útflutning og lítilsháttar aukningar á
greiðslumarki. Verðhækkanir á árinu 1997
skila sauðfjárræktinni verulegum afkomu-
bata. Vandi sauðfjárræktarinnar liggur þó
áfram í því að búin eru orðin of lítil og
nýting fastafjármuna og vinnuafls er ekki
nógu góð.
Tafla 22. Afkoma sauðfjárbúa 1993-1997 (verðlag hvers árs í þús. kr.)
1993 1994 1995 1996 1997
Fjöldi búa 113 117 108 118 139
Meðalbúst. greiðslum. ærg. 284,5 256,6 259,2 278,4 286,4
Tekjur 2.806 2.682 2.656 2.921 3.290
Gjöld 2.201 1.958 2.009 2.275 2.412
Hagn. fyrir laun til eigenda 605 724 647 646 877
Tekjur pr. aergildi, kr. 9.863 10.452 10.247 10.492 11.487
Gjöld f. laun pr. ærgildi, kr. 7.736 7.631 7.751 8.172 8.421
Hagn. f. laun pr. ærgildi, kr. 2.127 2.822 2.496 2.320 3.062
Heimild: Hagþjónusta landbúnaðarins.
39