Búnaðarrit - 01.01.1997, Page 69
BÚNAÐARRIT 1997
Ferðaþjónusta
Tekjur í ferðaþjónustu eru annars vegar af
sölu gistingar og veitinga í tengslum við
hana, en hins vegar af sölu annarrar þjón-
ustu svo sem afþreyingar, minjagripa o.fl.
Samkvæmt verðmætaáætlun Framleiðslu-
ráðs landbúnaðarins fyrir árið 1997 gáfu
tekjur af sölu gistingar og veitingasölu
tengdri henni 67% af tekjum í greininni en
sala annarrar þjónustu 33%. Verðmæti
seldrar þjónustu og vara hjá ferðaþjónustu
voru samkvæmt sömu heimild 4,3%
heildarverðmæta landbúnaðarframleiðsl-
unnar árið 1997.
Árið 1997 auglýstu 128 ferðaþjónustu-
bæir þjónustu sína í bæklingi Ferðaþjónustu
bænda. Fjölgaði þeim um níu frá árinu áður.
Gistifymi, sem skráð var í bækling Ferða-
þjónustu bænda 1997, nam alls 2.495
rúmum. Annað skráð gistifymi hjá bændum
er talið vera u.þ.b. 1.000 rúm samkvæmt
upplýsingum frá Hagstofu Islands. Gisti-
nætur á bæjum innan Ferðaþjónustu bænda
töldust vera 102.805 árið 1997 sem
jafngildir fullri nýtingu í tæplega 46 daga.
Ferðaþjónustubændur bjóða einnig fjöl-
breytta aðra þjónustu, svo sem veitingasölu,
ýmsa afþreyingu og nokkrir aðilar bjóða
kynningu á íslenskum landbúnaði og sveita-
lífinu á skilgreindan og skemmtilegan hátt.
Uppbygging afþreyingarstarfsemi getur
verið mjög kostnaðarsöm en mikilvægi
hennar er ótvírætt við að draga að ferða-
menn. Árið 1997 var mikið framkvæmdaár
meðal ferðaþjónustubænda og auknig varð á
gistifymi. Meirihluti þess gistifymis sem
bættist við voru herbergi með baði og er
greinileg sú þróun að bændur, sem stundað
hafa ferðaþjónustu um nokkurn tíma,
byggja slíka aðstöðu.
Ársreikningum ferðaþjónustubænda er
ekki safnað sérstaldega til uppgjörs en
almennt er talið að samdráttur hafi orðið í
ferðaþjónustu hér á landi árið 1997. Ferða-
mönnum frá mikilvægum markaðssvæðum í
V-Evrópu fækkaði. Óhagstæð gengisþróun
evrópumynta gerði árið erfitt fyrir ferða-
skrifstofur sem selja ferðir hér innanlands og
þurfa að gefa verðið út í erlendri mynt með
löngum fyrirvara. Vandamál gengisþróunar-
innar kom hins vegar almennt ekki mikið
við rekstraraðila innan Ferðaþjónustu
bænda enda algengast að þeir verðleggi í
íslenskum krónum og fái greitt samkvæmt
því.
67