Heilbrigðismál - 01.07.1971, Side 4

Heilbrigðismál - 01.07.1971, Side 4
Bjarni Bjarnason Heimurinn og tilveran virðast hafa upp á svo margar dásemdir að bjóða, sem gætu gert líf okkar fegurra og hamingjusamara en það er í dag, ef við aðeins kæmum auga á það, til- einkuðum okkur það, nytum þess eins og við ættum að geta gert og skildum það hinum rétta skilningi. En það er engu líkara en að maðurinn kæri sig yfirieitt ekkert um hið góða líf, þar sem ríkir friður og eindrægni og hver unir glaður við sitt. Þetta þykjast allir vilja en hugur fylgir ekki máli. Það líf gefur manninum ekki þá fullnægingu sem hugur hans stendur til. Maðurinn sækist eftir áhættum, allskonar sterkum og annarlegum áhrifum. Hann er aldrei ánægður með sjálfan sig eins og hann er, né annað það, sem hann hefur, og leitar því ótrúlegustu ráða til að gera sig einhvern- veginn öðruvísi. Sumir virðast ekki geta unað lífinu án þess að stofna því allt af í ýtrustu hættu. Fjölda fólks er það brennandi nauðsyn, að koma sér í glæfralega áhættu til að þjóna lund sinni þó að tilgangurinn virðist enginn. Sóknin í það sem sízt skyldi Þetta fólk er venjulega ekki að fórna sér fyrir neitt, sem geíur iífi þess eða annarra aukið gildi, eða til að bjarga einu eða neinu. Maðurinn er nú einu sinni svona furðulegur í háttum sínum og huga, honum nægir aldrei það sem hann hefur, og ef hann hefur öðlazt það, sem átti að vera uppfylling allra óska hans og drauma, er ljóminn af því venjulega horfinn um leið og markinu er náð, tómleiki og óánægjutilfinning komin í staðinn. Hann fyllist nýrri brennandi þrá eftir nýjum gæð- um og nýjum stefnumörkum. Helzt er svo að sjá, sem það eigi ekki fyrir mannkyninu að liggja, að öðlast nokkurntíma hinn innri frið eða neitt það sem veitir sanna lífsfyllingu, einmitt það, sem er fyrsta skil- yrðið til að skapa hrausta sál í hraustum lík- ama; skapa samhyggð, mannheill og sam- ræmi. J Það er ömurleg tilhugsun, að fólkið skuli óvíða vera óhamingjusamara en í hinum svo- kölluðu velferðarríkjum, þar sem allt er lagt upp í hendurnar á því, ríkið hugsar fyrir það, sér um að það fái allt sem það þarfnast og heimtar. Það fer nákvæmlega eins fyrir þessu fólki og ofdekruðu börnunum, sem er fært allt sem þau vilja hendinni til rétta og reynt að verða við öfgunum, hversu langt sem þær ganga. Maðurinn sem vinnur hörðum höndum og verður að berjast fyrir hverju skrefi, sem hann FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL 4

x

Heilbrigðismál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.