Heilbrigðismál - 01.07.1971, Blaðsíða 20

Heilbrigðismál - 01.07.1971, Blaðsíða 20
Ólafur Bjarnason prófessor Erindi þetta er hið fjórða í röðinni af fræðsluerindum um krabbamein, sem læknar flytja í útvarp um þessar mundir í tilefni 20 ára afmælis Krabbameinsfélags íslands og að tilhlutan þess. Þróun læknisfræði síðustu áratuga hefur ákveðið beinzt í þá átt að fyrirbyggja og koma í veg fyrir sjúkdóma. Hefur þessi þróun einkum verið áberandi eftir síðustu heims- styrjöld og enn stefnir í þá átt að fyrirbyggj- andi aðgerðir verða æ ríkari þáttur í heil- brigðisstarfsemi hverrar þjóðar. Enda þótt sjúkdómavarnir hafi orðið æði fyrirferðarmikill þáttur í heilbrigðismálum margra þjóða á síðustu áratugum er saga þeirra þó allmikið lengri. Höfuðskilyrði þess að unnt sé að fyrirbyggja sjúkdóma er að or- sök þeirra sé kunn. Þó þekkjum við dæmi þess, að komið hefur verið í veg fyrir sjúk- dóm löngu áður en orsakir hans voru þekktar. Frægast dæmi um það mun vera bólusetning Krabbameinsvarnir Jenners gegn stóru bólu heilli öld áður en or- sökin var kunn. Annað þekkt dæmi svipaðs eðlis eru varn- araðgerðir James Lind gegn skyrbjúg í sjó- liðum brezka flotans nær 150 árum áður en menn vissu að skortur á C-vítamíni, öðru nafni ascorbinsýru, veldur þeim sjúkdómi. Það var þó ekki fyrr en á síðari hluta 19. ald- ar og í byrjun þeirrar tuttugustu, að verulega stórstígar framfarir urðu á þessu sviði. En til grundvallar þeim framförum lágu uppgötv- anir á orsökum næmra sjúkdóma og vaneldis- sjúkdóma. Hér á landi hafa menn notið heillaríks ár- angurs nefndra uppgötvana, m. a. við útrým- ingu holdsveiki, sullaveiki, barnaveiki, tauga- veiki, að ógleymdum hinum stórfellda árangri í baráttunni við berklaveikina. Allur þessi ár- angur byggist þó einnig að verulegu leyti á því, hversu góð samvinna hefur verið í milli heilbrigðisstarfsmanna annars vegar og al- mennings hins vegar. A síðustu árum hafa orðið stórstígar fram- farir varðandi þekkingu manna á ýmsum arf- gengum sjúkdómum. Sem dæmi má nefna að ákveðin tegund fávitaháttar orsakast af breyt- ingu á litningum frumukjarna þessara einstak- linga. Slíkar breytingar má greina snemma á fósturskeiði og koma í veg fyrir að slík börn fæðist. Þá er vitað að auknar líkur eru á því að konur, sem komnar eru yfir fertugt, fæði af sér slík afkvæmi. 20 FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.