Heilbrigðismál - 01.07.1971, Side 23
unarkonur og rannsóknarstúlkur, en nú er
starfsliðið orðið 16 manns.
Aðsókn að Leitarstöðinni hefur verið ágæt
frá upphafi bæði frá Reykjavíkursvæðinu og
frá öðrum landshlutum og nokkru þó betri
frá þeim konum sem leitað hafa rannsóknar
utan af landi. Þannig hafa mætt milli 70-
80% af Reykjavíkursvæðinu við fyrstu skoð-
un, en allt að 90% utan af landsbyggðinni.
Forráðamenn stöðvarinnar velta því nú mjög
fyrir sér hvernig unnt sé að ná til allra þeirra
kvenna, sem ráðgert er að rannsaka og fylgj-
ast með hverju sinni, en það er auðvitað það
mark sem stefna ber að.
Þær tölur sem hér er vitnað til miða við
mætingu í fyrsta sinn, en það er að sjálfsögðu
ekki nægjanlegt að konur komi aðeins einu
sinni á æfinni til slíkrar skoðunar sem þess-
arar. Rannsóknina verður að endurtaka með
vissu millibili ef tryggt á að vera að hún þjóni
sínu ætlunarverki. Það er nokkuð mismun-
andi í hinum ýmsu löndum hvað menn hafa
stefnt að tíðum rannsóknum. í Svíþjóð til
dæmis er miðað við það að konur séu rann-
sakaðar fjórða hvert ár. Hér á landi var gerð
tilraun til að rannsaka konur að nýju tveim
til þrem árum eftir að þær höfðu komið til
rannsóknar í fyrsta sinn. Ekki er enn fullrann-
sakað hver hlutfallstala þeirra kvenna er, en
þegar er ljóst að mæting hefir ekki verið nógu
góð, sérstaklega ekki á Reykjavíkursvæðinu.
E. t. v. er ráðlegt að breikka bilið milli rann-
sókna og hafa það fjögur ár, svipað því sem
Svíar stefna að. Hins vegar eru ýmsir sem
halda því fram, að æskilegast væri að konur
gengju undir svona rannsókn árlega eftir að
þær eru komnar yfir 25 ára aldur.
Hver hefur þá árangurinn orðið af starf-
semi Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins? Á
fyrsta 6 ára starfstímabili stöðvarinnar fund-
ust 224 tilfelli af staðbundnu krabbameini í
Jeghálsi og 90 ífarandi krabbamein í móður-
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁI.
lífi og eggjakerfum. Eins og áður sagði er
mikilvægast að finna krabbameinið á hinu
staðbundna stigi, þannig að unnt sé að nema
það burt með öllu. Hins vegar er einnig
mikilvægt að finna meinið með þessum hætti
þó að það sé farið að vaxa ífarandi og því fyrr
því betra. Með samanburði á rannsókn, sem
framkvæmd var hér á landi á konum, sem
leitað höfðu lækna eftir að einkenni um ífar-
andi krabbameinsvöxt voru komin í ljós og
niðurstöðum af leit Krabbameinsfélagsins hef-
ur sýnt sig að með frumuleitinni finnast hin
ífarandi krabbamein á mun lægri stigum og
er því möguleiki á lækningu miklu meiri
þegar þannig er ástatt.
Athyglisvert er að í hópi þeirra kvenna,
sem athugaðar voru í annað sinn var tíðni
bæði staðbundins og ífarandi krabbameins
fjórum sinnum lægri en í fyrstu skoðun.
Á Leitarstöð B hefur verið unnið rnikið og
merkilegt brautryðjendastarf í heilbrigðismál-
um þjóðarinnar. Hún er þó ekki einangrað
fyrirbæri í heilbrigðisþjónustunni heldur
hlekkur, sem fellur í þá keðju. Finnist eitt-
hvað grunsamlegt við rannsókn í Leitarstöð-
inni er framhaldsrannsókn nauðsynleg og
liggur þá næst fyrir að taka vefjasýni til at-
hugunar. Slík sýni eru send í Rannsóknastofu
Háskólans í meinafræði og þar er úr því skor-
ið hvort um krabbamein sé að ræða, hversu
langt meinið er gengið, hvort um er að ræða
staðbundið krabbamein eða hvort æxlið er
farið að vaxa ífarandi. Eftir niðurstöðu þeirrar
rannsóknar er síðan meðferð ákveðin. Hér á
landi er nú svo kornið að meðferð allra ífar-
andi krabbameina í leghálsi fer fram á einum
stað, á kvensjúkdómadeild Landspítalans. Það
hefur lengi verið viðurkennd stefna í flestum
menningarlöndum að æskilegast sé að slík
meðferð sé bundin við einn ákveðinn stað, þar
sem beztu skilyrði til lækninga eru fyrir
hendi.
23