Heilbrigðismál - 01.01.1975, Blaðsíða 8

Heilbrigðismál - 01.01.1975, Blaðsíða 8
niður. Tennur mannsins eru ágætlega lag- aðar til að tyggja ávexti, hnetur og korn. Hin efnafræðilega melting sterkjunnar hefst í munninum. Hver einasta ögn af hrárri sterkju er umlukin seigu himnukenndu slíðri sem springur við suðu. Þannig losnar um sterkjuna. Ptyalinhvati eða ensym - í munn- vatninu, klýfur hina soðnu sterkju í malt- sykur, sem aftur verður að glúkósu meðan á meltingunni stendur. Um 60% sterkjunnar meltist fyrir áhrif ptyalinsins, sé fæðan tugg- in nógu rækilega. Starfsemi ptyalinsins heldur áfram, þar til magasýrurnar hafa gert það óvirkt. Vegna þess að ptyalin verkar ekki á fitu og eggjahvítu, á að tyggja sérstaklega vel þær matartegundir, sem eru ríkar af þess- um efnum, til að undirbúa þær fyrir kemiska meltingu lengra niður í meltingarveginum. Varirnar, tungan, kinnarnar taka þátt í tyggingunni, með því að færa matinn á milli tannanna í efri og neðri kjálka. Það á sér stað að bitið er í tunguna og kinnarnar, en venju- lega gæta þær sín og víkja undan áður en tennurnar mætast. Allt gerist þetta ósjálfrátt. Tungan styður starfsemi tannanna með því að merja og velta matnum upp að harða gómnum — gómloftinu. Tungan er prýði- lega fallin til þessa starfs, með sínum sterku vöðvum og grófa yfirborði. Þrír kirtlar gefa frá sér munnvatn. Tveir þeirra, bæði sá sem er undir tungunni og hinn sem er innaná neðri kjálkanum, tæma munnvatn sitt undir tunguna. Hinn þriðji — parotis — kinnkirtillinn, tæmir sig út úr kinninni neðanverðri. Munnvatnið er mis- munandi að samsetningu og einmitt þannig að það á hverju sinni við þann mat sem tugg- inn er. Ilmur fæðunnar á mikinn þátt í smekk hans en sætt, súrt og beiskt eru efni, sem tungan er sérstaklega næm fyrir. Tíu þúsund örsmáir bragðlaukar skynja smekkinn og eru mjög næmir fyrir sætu á tungubroddinum, súru á jöðrum hennar, söltu á efraborði hennar en beizku og römmu á tunguhryggn- um. Nokkrir bragðlaukar eru í kverklapúðun- um og afturhluta koksins. Bragðlaukarnir senda boð til heilans og draga sennilega úr sultarkenndinni, þegar hæfilegur matur er kominn í magann. Ein orsök þess, að fólk fitnar ört er að það borðar svo hratt, að glukósuhagurinn sem ákveður blóðsykursþröskuldinn í hypothala- mus, neðst í heilanum, getur ekki áttað sig á öllu, sem komið er í magann, og er því ekki í standi til að deyfa sultartilfinninguna áður en maginn er orðinn yfirfylltur. Mjög þýðingarmikið er að tyggja matinn vel og forðast mikla vökvadrykkju, vegna þess að vökvi með máltíðum dregur úr munnvatns- mynduninni. Sé vökvinn meiri en hóflegur skolast maturinn niður, án þess að lífeðlis- fræðilegi þátturinn, sem fram fer í munnin- um, fái notið sín. Fyrir 100 árum, brýndi Harold Fletcher alla til að tyggja hvern bita 32 sinnum — einu sinni fyrir hverja tönn. Þetta var nú kannske óþarflega vel í lagt, en þar með var lögð áherzla á hversu þýðingar mikið er að tyggja vel. Það veltur á miklu, að tyggja matinn án vökvablöndunar, allt þar til hann er ummyndaður í fljótandi graut. Þá fyrst á að renna honum niður. Með því að tyggja vel, nýtiur fólk bragðgæða matar- ins í miklu ríkara mæli en annars. Smám saman, eftir því sem tyggingunni miðar áfram, færist hinn fulltuggni matur, aftar og aftar eftir tungunni og þaðan sendist hann skyndilega niður í hálsins fyrir til- verknað sérstakra kyngingarfæra. Þau hreyf- ast ofan við og utanum barkann, sem er Iok- aður af barkalokinu, en vélindið opnast til að veita matnum viðtöku. Með flóknum vöðvasamdráttum, sem líkj- ast bylgjuhreyfingum (peristalsis) er matur- FRÉTTABRÉF UM HEILBRtGÐISMÁL 4

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.