Heilbrigðismál - 01.01.1975, Blaðsíða 24

Heilbrigðismál - 01.01.1975, Blaðsíða 24
sé meinlausari en aðrar. Með því ættum við á hættu lögsókn fyrir blekkingar og óhæfu- verk. Skýrslan, sem gefin verður út, innan fárra vikna, um tjörumagn sígarettutegunda, er fyrsta skrefið af hálfu stjórnarvalda til að hvetja fólk að reykja þær sígarettutegundir, sem minnst hætta stafar af. Sígarettur með litlu tjörumagni munu verða merktar sem hættuminni en hinar, en þó jafnframt með þeim vitnisburði, að þær séu ekki hættulausar. Ef tegundir með litlu tjöru- magni verða eftirsóttar á heimsmarkaðnum, mun tóbaksiðnaðurinn sækja fast, að fá við- urkenndar gervisígarettur. Samt sem áður getur svo farið, að gervisíga- rettur verði svo bragðlausar - jafnvel þó þeim sem háðir eru reykingum finnist níkótínmagn þeirra viðunandi — að enginn vilji líta við þeim. Tóbakshringarnir bíða nú átekta, að sjá hvernig tjörusnauðustu tegundirnar seljast, sem hafa verið settar á markaðinn síðustu sex mánuðina, eftir að tjörumagnsskýrslan hefur verið birt. Tæknilegum brögðum hefur verið beitt við sígarettur með litlu tjörumagni, til að draga úr hættum af reyk og tjörumyndun. Stöðluð- um tegundum hefur verið breytt nokkuð til að minnka tjöruna. Breytingarnar verða að vera smávægilegar í senn og hægfara, svo 20 reykingafólkið taki ekki eftir hinum breytta smekk. Dregið er úr tjörumagninu með því að setja saman við tóbakið 10% af sérstaklega með- höndluðum tóbaksblöðum. Þau hafa verið höfð í vatnsbaði, til að útrýma miklu af tjör- unni, og síðan pressuð í þynnur eins og við pappírsgerð. Tilraunir á dýrum sýna, að tjaran sem þá er eftir hefur minnkaða krabbameins- hættu í för með sér. Frekari rírnun tjörunnar næst með því að nota nýja tegund sígarettupappírs, sem er fimmfalt gisnari en hinn venjulegi, en við það eykst mjög loftræstingin innan sígarett- unnar, þegar tóbakið brennur. Þetta dregur mjög úr kolsýrlingsmynduninni — hún fellur um 15% — og þannig minnkar hættan á hjarta- og æðasjúkdómum. Orsmá göt á pappírnum utan um reyksíurn- ar, hleypa inn lofti, sem þynnir reykinn og þannig dregur úr tjörumagninu og öðrum skaðvænum efnum, í hverju sogi. Vegna þessa er einnig hægt að nota mjög þéttan bylgju- pappír (crep) í síurnar, sem þá draga í sig ótrúlega mikið af tjöru. Eitt sérkenni þessara sígarettutegunda, er óvenjuleg lengd vafnings- ins utan um síuna, til að hindra að síðasti tjörumettaði stubbur sígarettunnar verði reyktur. Bj. Bj. þýddi. FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL '

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.