Heilbrigðismál - 01.01.1975, Blaðsíða 16
Liðþófí
Heilbrigður “r
liðþófi skorðiun Taug
0 Liðþófaröskun
^ læknuð með nýrri
aðferð
Papain er enzym - eða hvati - unnið úr
papayaplöntunni. Flestar húsmæður kannast
við þetta efni. Matvöruverzlanir selja það til
að mýkja kjöt. Jafnvel þó það sé ólseigt, má
gera það mjúkt og auðtuggið. Nú er papa-
inið farið að leggja leið sína úr eldhúsinu
yfir í skurðstofurnar. A spítölum í Boston og
í Chigago nota læknar efnið - sem kallast á
Iæknamáli chymopapain — til að mýkja upp
brjóskþófa á milli hryggjarliða, sem hafa
raskast eða gengið úr skorðum. Þessi með-
ferð eyðir verkjum og sparar marga skurðað-
gerð. Hryggjarliðaþófar — brjóskpúðar, sem
mynda bilið milli hryggjarliðanna — eru seigir
brjóskkenndir trefjavefir, fylltir vatni og
eggjahvítu, sem kallast grunnefni. Þegar vef-
irnir í kringum þófana rifna, bunga þófarnir
út eða skreppa út úr sinni eðlilegu legu og
valda verkjum þegar þeir þrýsta á taugaræt-
urnar, t. d. í ischiastauginni, sem liggur eftir
endilöngum fætinum að aftan.
Oft lagast verkur frá liðþófalosi við rúm-
legu og notkun aspiríns, eða annarra verka-
lyfja. Verði verkirnir mjög þrálátir eða láti
ekki undan neinum orkulækna- eða lyflækn-
ingaaðferðum er iðulega skorið upp við sjúk-
dómnum, sem er vandasöm aðgerð. Sprungni
liðþófinn er tekinn burtu, liðirnir leggjast
saman og gróa fastir. En oft getur chymopapain
meðferð, komið í stað uppskurðarins. Hvat-
inn, sem er sprautað inn í liðþófann gerir
grunnefnið meirt, þannig að vökvinn getur
runnið út og líkaminn eytt því. Við þetta
rýrnar liðþófinn, skreppur aftur inn á sinn
stað og þrýstingurinn á taugarnar kringum
hann hverfur.
Uppörvandi árangur
Læknar hafa komist að þeirri niðurstöðu,
að meðferðin gefi beztan árangur hjá ungum
sjúklingum þegar liðþófinn hefur færst svo
úr lagi, að hann veldur miklum ischiasverkj-
um, sem ekki hafa lagast við venjulega með-
ferð. Þeir taka vara við því, að chymopapain
valdi stundum alvarlegum ofnæmisviðbrögð-
um, hjá allt að 1 % sjúklinganna og meðferð-
in verður því að gerast í fullkominni svæf-
ingu á spítala, þar sem læknar geta tekist
þegar í stað á við allar aukaverkanir.
Hvata — enzym - meðjerðin, sem enn er
á tilraunastigi, hefur ekki verið viðtekin af
matvæla og lyfjaeftirlitinu, sem víðtæk að-
gerð, heldur er notkun efnisins takmörkuð
við einstakar lækningastofnanir, sem enn
eru að rannsaka áhrifamátt þess og hvaða á-
hættur kunni að fylgja notkun þess.
Þeir sem hafa notað chymopapain við lið-
þófalosi hingað til, hafa undantekningar-
laust skýrt frá góðum árangri.
Læknarnir James Huddeston og Robert
12
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL