Heilbrigðismál - 01.01.1975, Blaðsíða 17
Einkenni farsótta
Tímaritið: Health.
Venjulega er það móðirin, sem verður að
bera hitann og þungan af sjúkdómum í fjöl-
skyldunni, og það er gott að hún viti nokkur
deili á þeim smitsjúkdómum, sem mest leita
4 börnin.
Kvef og influenza geta byrjað með sárind-
um í hálsi, en hálsbólga kemur líka iðulega
sem sjálfstæður sjúkdómur, og hefst með
höfuðverk, uppköstum og roða í hálsi. At-
hugið samt húðina daginn eftir, hvort séu
nokkrir rauðir punktar, eins og eftir títu-
prjónsstungur, eða hvort húðin sé öll bleik-
rauð, en fölvi í kringum munninn. Þetta
hendir stundum og er þá langoftast um skarl-
atssótt að ræða. Hálsbólgan sem henni fylgir
er hættuleg. Henni fylgja stækkaðir, þrútnir
kverklar og viðkvæmir, bólgnir kirtlar utan á
hálsi. Hálsbólgan orsakast af keðjusýklum,
sem valda liðagigt. Nauðsynlegt er, að lækn-
irinn gefi penicillin við þessari hálsbólgu til
að forðast fylgikvilla.
Hlaupabóla byrjar oft með smávægilegum
hita, en stundum verður einskis vart fyrri en
kemur bóluútsláttur — rauðar bólur, sem
koma fyrst fram á andlitinu eða bakinu. Það
myndast vökvi í toppnum á þeim og þær geta
orðið að graftarblöðrum. Þær þorna upp og
mynda skorpur eftir 3-4 daga. En jafnframt
geta nýjar bólur myndast, jafnvel dögum
saman, og orðið mjög þéttar á þeim hlutum
líkamans, sem klæðin hylja.
Látið sjúklinginn liggja í rúminu, á léttu
fæði þangað til hitinn er horfinn. Sjúkdóm-
urinn læknast af sjálfum sér á nokkrum dög-
um, en smitun getur borist til annarra, viku
eftir að útslátturinn kom í ljós.
Mislingar byrja með hnerrum og nefstíflu
eins og byrjandi kvef, en takið vel eftir nef-
rennsli og roða í augum og augnrennsli, á-
samt nokkuð hörðum hósta, ef mislingar
ganga í nágrenninu. Húðin verður þá heit og
mælirinn sýnir hækkaðan hita. Látið barn,
sem þannig er ástatt um fara í rúmið. Á 4.
degi, eða þar um bil, kemur útsláttur, sem
myndar misstórar skellur, samsettar úr örsmá-
Framh. á hls. 18.
Boyd, starfa við Aðalspítalann í Massachusetts
~ en hann opnaði nýlega deild, sem fæst við
sjúkdóma í baki —. Þeir hafa sprautað chymo-
papaini í 250 sjúklinga með liðþófalos, síðast
fréttabréf um heilbrigðismál
liðin 2,5 ár. Samkvæmt skýrslum þeirra hafa
3/4 sjúklinganna losnað við verkina og lið-
þófinn færst í sæti sitt.
Bj. Bj. þýddi
13